Allt í góðu hjá LeBron og Spoelstra - labbaði ekki viljandi á þjálfarann Henry Birgir Gunnarsson skrifar 30. nóvember 2010 23:45
Það er órói í Miami eftir slaka byrjun Sólstrandargæjanna í Heat í NBA-deildinni. Sögusagnir um neikvæðni stórstjarnanna í garð þjálfarans, Erik Spoelstra, deyja ekki og dóu svo sannarlega ekki er hann hélt einkafund með LeBron James. Þeir félagar ræddu saman í hálftíma inn á skrifstofu Spoelstra. Þjálfarinn vildi ekki játa að um krísufund væri að ræða. "Eigum við ekki að kalla þetta heilbrigðan ágreining. Ég tel svona fundi góða fyrir liðið. Ef menn komast í gegnum slíkt þá styrkir það liðið og þjappar mönnum saman," sagði Spoelstra. James vildi ekki viðurkenna að honum væri persónulega í nöp við þjálfarann og sagði allt í góðu þeirra á milli. Mikið var gert úr því er James virtist keyra utan í Spoelstra er hann kallaði leikhlé í tapleiknum gegn Dallas. James sagði þá umræðu vera bull og neitaði því að hann hefði viljandi labbað utan í þjálfarann sinn. "Ég tók ekkert eftir þessu og ekki heldur Spoelstra. Þetta var óviljandi snerting," sagði James en sjá má atvikið í myndbandinu hér að ofan.
NBA Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Shaq í Stjörnuna Körfubolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira