Tökum okkur góðan tíma í að finna möndluna 1. janúar 2010 00:01 „Mér finnst líka svo gott að hafa kerti hjá mér í vinnunni yfir dimmasta tímann," segir María Sigrún Hilmarsdóttir fréttakona. „
Ég er nú þegar byrjuð að huga að jólunum. Búin að birgja mig upp af kertum til að hafa það kósý í skammdeginu svo það er nú þegar orðið nokkuð jólalegt á heimilinu," svarar María Sigrún Hilmarsdóttir fréttakona á RÚV aðspurð út í hennar undirbúning fyrir jólin. „Mér finnst líka svo gott að hafa kerti hjá mér í vinnunni yfir dimmasta tímann. Svo er ég búin að kaupa nokkrar jólagjafir og allan jólapappir sem ég þarf." „Ég er nú þegar byrjuð að huga að jólunum. Búin að birgja mig upp af kertum til að hafa það kósý í skammdeginu svo það er nú þegar orðið nokkuð jólalegt á heimilinu." „Næstu helgi verður haldið í sumarbústað þar sem við skrifum jólakortin saman en ég hef nokkrum sinnum brunnið inni með kortin sökum tímaskorts og hef látið það mér að kenningu verða." „Svo hef ég einstaklega gaman af því að baka og búa til konfekt," segir hún og bætir við: „Ég og mamma dúllum okkur saman við það á aðventunni. Þá eru nokkrar sortir ávallt gerðar og svo prófum við oft eitthvað nýtt og spennandi." „Svo hef ég einstaklega gaman af því að baka og búa til konfekt." „Ja, ætli það sé ekki Gerður G. Bjarklind, samstarfskona mín," svarar hún aðspurð hvað kemur henni í hátíðarskap. „Henni hefur meira að segja tekist að koma mér í jólaskap um hásumar með undurfagurri rödd sinni og hlýju," segir María Sigrún. Aðfangadagskvöldið hjá þér í ár? „Hingað til hef ég ávallt varið aðfangadagskvöldi í faðmi fjölskyldu minnar." „Svo er ég búin að kaupa nokkrar jólagjafir og allan jólapappir sem ég þarf." „Þá förum við í kirkjuna, borðum dýrindis jólamáltíð og tökum okkur góðan tíma í að finna möndluna og opna gjafirnar." „Svo bregðum við okkur í þægilegri föt, -jafnvel náttföt og hlýja sokka og spilum fram á nótt. Þannig eru jólin mín," segir hún áður en kvatt er með hlýrri jólakveðju.-elly@365.is
Jólafréttir Mest lesið Uppskrift að piparkökuhúsi Jólin Gyðingakökur Jól Svona gerirðu graflax Jól Gyðingakökur ömmu eru jólin Jól Laufabrauð Jól Yfir fannhvíta jörð Jól Eltist ekki við tísku í skreytingum Jól Fylltar kalkúnabringur Jólin Piparkökuhús Jól Mömmukökur bestar Jólin