Viðskipti erlent

FIH bankinn fékk 45 milljarða lán í dag

FIH bankinn danski, sem nú er í eigu Íslands, fékk í dag lán frá dönskum stjórnvöldum upp á 1,9 milljarð danskra kr. eða um 45 milljarða kr. Um er að ræða lánveitingu úr svokölluðum bankpakke II.

Í tilkynningu frá FIH um málið segir að fjárhagstaða bankans hafi styrkst ennfrekar með þessu láni sem gerir bankanum kleyft að auka við útlán sín. Þar að auki hefur lánveitingin í för með sér að eiginfjárstaða bankans fer í 12,3%. Fyrir lánveitinguna var eiginfjárstaða bankans rúm 10,7%.

Í frétt um málið á börsen.dk segir að lánveitingin hafi ekki komið á óvart enda hafi FIH boðað hana við uppgjör sitt eftir fyrsta ársfjórðung ársins í maí s.l. Þá var raunar rætt um að bankinn myndi sækja um 1,7 milljarða danskra kr.

Fram kom í uppgjörinu m.a. að ástæðan fyrir því að FIH sótti um lán í bankpakke II væri fjármálakreppan og sú óvissa sem hún hefði skapað um afskriftaþörf bankans í framtíðinni.

Bankpakke II var samþykktur í danska þinginu s.l. vetur en honum er ætlað að koma til aðstoðar þeim dönsku bönkum sem hvað harðast hafa orðið úti í fjármálakreppunni. Samkvæmt "pakkanum" eiga þeir bankar sem fá lán úr honum möguleika á að breyta þeim í hlutfé í eigu danska ríksins síðar meir.

Við þetta má bæta að báðir færeysku bankarnir sem skráðir eru í kauphöllina hérlendis hafa sótt um lán úr bankpakke II.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×