Griffin byrjar vel með Clippers: Sjö stig á fyrstu 75 sekúndunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. júlí 2009 13:30 Blake Griffin er efni í stjörnuleikmann í NBA-deildinni. Mynd/AFP
Blake Griffin var valinn fyrstur af Los Angeles Clippers í nýliðavali NBA-deildarinnar og í fyrsta leik sínum í sumardeildinni sýndi hann af hverju. Blake Griffin skoraði 27 stig og tók 12 fráköst í 93-82 sigri Clippers á nágrönnum sínum í Los Angeles Lakers. Griffin hóf leikinn af miklum krafti og var kominn með sjö stig eftir aðeins 75 sekúndna leik. Hann hitti úr öllum sex skotum sínum í fyrri hálfleik og hitti alls úr 11 af 15 skotum sínum á þeim 29 mínútum sem hann spilaði. „Núna er ég bara í sömu stöðu og allir aðrir leikmenn í sumardeildinni þar sem ég er að reyna að sína þjálfaranum og liðsfélögunum hvað ég get gert. Þetta var eins og hver annar leikur og ég var afslappaður. Það er langt síðan að ég spilaði síðasta leik og það var því gott að komast aftur út á gólfið," sagði Blake Griffin sem var með 22.7 stig og 14,4 fráköst að meðaltali með Oklahoma-skólanum á síðasta tímabili. „Hann réð vel við alla pressuna en ég hef ekki miklar áhyggjur af honum því hann mætir á hverjum degi til að leggja sig fram," sagði Mike Dunleavy, þjálfari Los Angeles Clippers. „Ég er ekki hissa á því að hann setti niður öll þessi skot. Ég horfi á hann daglega hitt 8 af 10 skotum frá fimm stöðum á vellinum," sagði Dunleavy.
NBA Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Enski boltinn Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Íslenski boltinn Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið Íslenski boltinn Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Enski boltinn Víkingur - Borac | Slagur um Sambandsdeild og hundruð milljóna Fótbolti „Versta ár ævi minnar“ Fótbolti Tveir látnir og sjö særðir eftir að maður ók niður hjólreiðalið Sport Fleiri fréttir Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Sjá meira