Viðskipti erlent

Sérfræðingar gáttaðir á verðþróun á áli

Sérfræðingar í álviðskiptum eru gáttaðir á verðþróuninni á áli að undanförnu. Um miðja síðustu viku tók álverðið mikla dýfu og fór undir 1600 dollara markið. Á föstudaginn var, eða tveimur dögum síðar, var það svo komið upp í tæpa 1670 dollara á tonnið.

Frá áramótum hefur verðið á álinu stöðugt legið upp á við, með stöku niðursveiflum inn á milli. Þetta gerist þrátt fyrir að álbirgðir í heiminum séu í sögulegu hámarki sem ætti að valda því að verðið lækkaði stöðugt.

Meðal þess sem hefur ýtt undir verðhækkanir á áli er að Kínverjar flytja nú meira inn af áli en þeir framleiða sjálfir og hafa þeir skorið niður afhendingar á áli til annarra Asíulanda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×