Lífið

Beyoncé klæðist E-label

Ánægðar
<B>Ásta Kristjánsdóttir</B> segir fréttirnar af innkaupum <B>Beyoncé</B> mjög ánægjulegar en söngkonan hefur dvalið í London ásamt eiginmanni sínum, Jay-Z. Beyoncé þykir hafa einstaklega góðan fatasmekk og var valin best klædda kona ársins 2009 af lesendum People. Leggingsbuxurnar, <B>Heavy Metal</B>, sem Beyoncé keypti eru sérstaklega vinsælar í Bretlandi um þessar mundir.
Ánægðar <B>Ásta Kristjánsdóttir</B> segir fréttirnar af innkaupum <B>Beyoncé</B> mjög ánægjulegar en söngkonan hefur dvalið í London ásamt eiginmanni sínum, Jay-Z. Beyoncé þykir hafa einstaklega góðan fatasmekk og var valin best klædda kona ársins 2009 af lesendum People. Leggingsbuxurnar, <B>Heavy Metal</B>, sem Beyoncé keypti eru sérstaklega vinsælar í Bretlandi um þessar mundir.

Íslenska hönnunarmerkið E-label hefur verið til sölu í tískuversluninni Topshop í London undanfarnar vikur. Bandaríska söngkonan Beyoncé hefur nú bæst í hóp viðskiptavina merkisins.

„Yfirmenn í Topshop hringdu í okkur og sögðu okkur frá því að Beyoncé væri stödd í versluninni og hefði keypt Heavy Metal leggings frá E-label. Við urðum auðvitað mjög ánægðar enda mikill heiður fyrir merkið. Þau sögðu okkur að hún hefði mætt þangað með nokkra lífverði með sér og halarófu af æstum aðdáendum. Verslunarstjórinn bauðst til að loka versluninni fyrir hana en hún afþakkaði það," segir Ásta Kristjánsdóttir, sem rekur E-label ásamt Hebu Hallgrímsdóttur, en Ásgrímur Már Friðriksson hannar flíkurnar.

Beyoncé er þó ekki eina erlenda stjarnan sem hefur verslað við E-label því fyrrverandi samstarfskona hennar, söngkonan Michelle Williams, pantaði nýverið sex flíkur frá fyrirtækinu. „Við létum breyta þeim aðeins fyrir hana og mér skilst að hún ætli að klæðast fötunum á tónleikum. Það væri mjög gaman að rekast á myndir af þessum konum í fötum frá okkur í nánustu framtíð," segir Ásta og hlær.

Beyoncé Knowles hefur verið ein vinsælasta söngkona heims síðastliðinn áratug, en hún sló fyrst í gegn árið 1997 með stúlknasveitinni Destiny's Child, en Michelle Williams var einmitt með henni í þeirri hljómsveit. Hún hefur ætíð vakið mikla athygli fyrir smekklegan klæðnað og var meðal annars valin best klædda kona ársins 2009 af lesendum tímaritsins People. Auk þess rekur hún eigið hönnunarfyrirtæki ásamt móður sinni undir nafninu House of Deréon.

sara@frettabladid.is










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.