Viðskipti erlent

Soros segir að versta kreppan heyri nú sögunni til

Ofurfjárfestirinn George Soros segir að það versta í fjármálakreppu heimsins sé nú að baki. Þetta kom fram í viðtali við hann á pólsku fréttastöðinni TVN24. Hann hvatti jafnframt til þess að alþjóðlegar reglur yrðu samdar til að hafa eftirlit með mörkuðum heimsins.

„Það versta í kreppunni er örugglega að baki okkur," segir hinn 78 ára gamli ungversk ættaði Gyðingur en ræddi það ekki frekar og vildi heldur fjalla um hve kringstæðurnar væru einstakar í núverandi umróti.

„Þessi kreppa er frábrugðin öðrum og markar endalok ákveðin tímabils," segir Soros. „Kerfið hefur hingað til verið byggt á þeirri blekkingu að markaðirnir geti náð jafnvægi af sjálfsdáðum og að kerfið rétti sjálft sig af."

Hvað fyrrgreindar reglur varðar segir Soros að markmið þeirra ætti að vera að hafa stjórn á þeim bólum sem myndast.

„Við þurfum alþjóðlegar reglur til að hafa hemil á alþjóðlegum mörkuðum," segir Soros. „Þetta verður ekki auðvelt en ef við náum þessu ekki mun kerfið hrynja."

Aðspurður um hvort Pólland hefði komið betur út úr kreppunni ef landið hefði verið með evruna sem gjaldeyri sagði Soros svo vera.

„Pólland, Ungverjaland og fleiri þjóðir nutu ekki verndar þar sem þau stóðu fyrir utan evrusvæðið," segir Soros. „Því gerðist það að bankar fóru að draga fé sitt út úr þessum löndum þegar Lehman Brothers urðu gjaldþrota."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×