Keflvíkingar búnir að reka kanann sinn í körfunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. desember 2009 10:30 Rahshon Clark hvarf í leiknum á móti Njarðvík. Mynd/Anton
Keflvíkingar sögðu í gær upp samningi sínum við Bandaríkjamanninn Rahshon Clark og mun lið þeirra spila án Bandaríkjamanns í næsta leik sem verður á móti KR í Toyota-höllinni á fimmtudaginn. Rahshon Clark var með 18,9 stig og 10,8 fráköst að meðaltali í leik. Rahshon Clark skoraði aðeins 6 stig á 31 mínútu þegar Keflavík steinlá fyrir Njarðvík í Ljónagryfjunni á mánudagskvöldið þar af var hann aðeins með eitt stig fyrstu 34 mínútur leiksins eða á sama tíma og Njarðvíkurliðið náði 24 stiga forskoti (70-46) í leiknum. Keflavík vann alla leikina þar sem hann skoraði 12 stig eða meira en hann var aðeins með 11 stig í tapi á móti Stjörnunni. "Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur ákveðið að segja upp samningi sínum við Rahshon Clark, en hann hefur ekki þótt standa undir væntingum það sem af er tímabils. Frá því að Rahshon hóf æfingar með Keflavík, var ljóst að það var margt sem vantaði upp á hjá honum miðað við þann styrk sem Keflavíkur-liðinu vantaði frá erlendum leikmanni. Honum var þó gefin lengri aðlögunartími til þess að bæta leik sinn, en þær betrumbætur hafa aldrei komið. Þar af leiðandi telur stjórn að skynsamlegast sé að segja upp samningi sínum við Rahshon og óskum við honum velfarnaðar í lífinu," segir í yfirlýsingu á heimasíðu Keflavíkur. Þar segir einnig af því að liðið mun spila án Kana í næstu leikjum. "Stjórnin hefur ekki tekið ákvörðun um nýjan kana sem mun fylla upp í skarð Rahshon og verður liðið því skipað alíslenskum leikmönnum, enda höfum við úr mörgum góðum leikmönnum að velja," segir í frétt um málið á heimasíðu Keflavíkur.
Dominos-deild karla Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Enski boltinn Valskonur fallnar í fyrsta sinn Íslenski boltinn Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Sjá meira