Cleveland vann Phoenix örugglega með 17 stigum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. desember 2009 09:15 Lebron James sést hér verja skot frá Amare Stoudemire í nótt. Mynd/AP
LeBron James gældi við þrefalda tvennu og Shaquille O'Neal skoraði tólf stig á móti sínum gömlu félögum í öruggum 107-90 sigri Cleveland Cavaliers á Phoenix Suns sem tapaði sínum öðrum leik í röð á ferð sinni um austurströndina. LeBron James var með 12 stig, 10 stoðsendingar og 8 fráköst fyrir Cavaliers og Zydrunas Ilgauskas skoraði 14 stig í sínum 724 leik fyrir félagið sem er nýtt félagsmet en Danny Ferry átti gamla metið. Channing Frye var með 22 stig fyrir Phoenix og Steve Nash skoraði 14 stig en var með fleiri tapaða bolta (6) en stoðsendingar (5).John Salmons skoraði 22 stig og Derrick Rose var með 19 stig í 92-85 sigri Chicago Bulls á Detroit Pistons en með því endaði Chicago-liðið fimm leikja taphrinu. Ben Gordon var stigahæstur hjá Detroit með 18 stig en hann var að spila á móti sínu gamla félagi.Earl Boykins skoraði 11 af 13 stigum sínum á síðustu tíu mínútunum í 104-102 sigri Washington Wizards á Milwaukee Bucks. Gilbert Arenas var stigahæstur hjá Washington með 22 stig en Luke Ridnour og Hakim Warrick skoruðu báðir 20 stig fyrir Milwaukee.Tyreke Evans skroaði 26 stig í fjórða heimasigri Sacramento Kings í röð en liðið vann þá 110-105 sigur á Indiana Pacers. Jason Thompson bætti við 22 stig og Spencer Hawes var með 21 stig fyrir Kings. Danny Granger skoraði 33 stig í þriðja tapi Indiana í röð.Aaron Brooks hitti úr átta fyrstu skotum sínum og endaði með 22 stig í 102-85 sigri Houston Rockets á Los Angeles Clippers. Chase Budinger var með 19 stig fyrir Houston eins og Al Thornton sem var stigahæstur hjá Los Angeles.
NBA Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Enski boltinn Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Íslenski boltinn Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið Íslenski boltinn Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Enski boltinn „Versta ár ævi minnar“ Fótbolti Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Fótbolti Tveir látnir og sjö særðir eftir að maður ók niður hjólreiðalið Sport Fleiri fréttir Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Sjá meira