Houston og Orlando tryggðu sér oddaleik Henry Birgir Gunnarsson skrifar 15. maí 2009 09:09 Rondo og félagar þurfa að hafa fyrir hlutunum.
Stórliðin LA Lakers og Boston Celtics töpuðu bæði í nótt og ljóst að það verða því tveir oddaleikír í NBA næsta sunnudag. Houston skellti Lakers, 95-80, og staðan í rimmunni 3-3 rétt eins og hjá Orlando og Boston eftir 83-75 sigur Orlando í nótt. Houston byrjaði ótrúlega gegn Lakers í nótt. Komst í 17-1 og hafði drjúga forystu í leikhléi. Lakers byrjaði síðari hálfleik af sama krafti og Houston byrjaði leikinn og tókst að minnka muninn í tvö stig. Þá sagði Houston hingað og ekki lengra. Steig á bensínið á nýjan leik og landaði að lokum sigri og tryggði sér þar með oddaleik á sunnudag. „Ég hef ekki heyrt annað síðustu daga en að við séum ekki að fara til LA aftur. Strákarnir neituðu að trúa þvi," sagði Rick Adelman, þjálfari Houston, en Rockets-strákarnir hafa komið gríðarlega á óvart í rimmunni enda án Tracy McGrady og Yao Ming. Dwight Howard kvartaði yfir því að fá boltann ekki nóg í fimmta leik Orlando og Boston. Hann fékk boltann í gær og skilaði 23 stigum og 22 fráköstum í sigri Orlando. Hann þarf að stíga upp einu sinni enn í rimmunni ef Orlando ætlar sér að komast í úrslit í Austurdeildinni. „Dwight Howard hafði greinilega rétt fyrir sér þegar hann gagnrýndi þjálfarann sinn. Hann var ótrúlegur," sagði Doc Rivers, þjálfari Boston.
NBA Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Enski boltinn Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Íslenski boltinn Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið Íslenski boltinn Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Enski boltinn „Versta ár ævi minnar“ Fótbolti Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Fótbolti Tveir látnir og sjö særðir eftir að maður ók niður hjólreiðalið Sport Fleiri fréttir Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Sjá meira