Jakob með 18 stig í 1. leikhluta - hálfleikur í leikjunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. mars 2009 19:36 Jakob Sigurðarson er sjóðandi heitur í Borgarnesi. Mynd/Daníel
Það stefnir í örugga sigra KR, Grindavíkur og Keflavíkur í leikjum kvöldsins í Iceland Express deild karla í körfubolta en nú er kominn hálfleikur í leikjunum. KR er 16 stigum yfir á móti Skallagrími í hálfleik, 34-50, í Fjósinu í Borgarnesi en Vesturbæingar tryggja sér deildarmeistaratitilinn með sigri. Jakob Örn Sigurðarson er búinn að skora 18 stig hjá KR (öll í 1. leikhluta) og næstir honum eru Skarphéðinn Freyr Ingason með 8 stig og Jason Dourisseau með 7 stig. Hjá Skallagrími er Landon Quick stigahæstur með 13 stig og Igor Beljanski er búinn að skora 11. Grindavík er 13 stigum yfir á móti FSu í hálfleik, 53-40 á heimavelli sínum í Grindavik. Arnar Freyr Jónsson og Brenton Birmingham eru báðir búnir að skora 13 stig hjá Grindavík og Arnar er líka búinn að gefa 4 stoðsendingar. Hjá FSu er Sævar Sigurmundsson með 17 stig og 7 fráköst og Árni Ragnarsson er búinn að skora 14 stig og taka 8 fráköst. Það stefnir í áttunda heimatap Tindastóls í röð en liðið er 19 stigum undir á móti Keflavík í hálfleik, 25-44. Hörður Axel Vilhjálmsson er stigahæstur hjá Keflavík með 13 stig og Jón Norðdal Hafsteinsson er búinn að skora 11 stig. Hjá Tindastól er Alphonso Pugh búinn að skora mest eða átta stig. KR, Grindavík og Keflavík hafa öll náð góðri forustu eftir fyrsta leikhluta. KR-ingurinn Jakob Örn Sigurðarson skoraði 18 stig og hitti úr öllum átta skotum sínum í fyrsta leikhluta í leik Skallagríms og KR. KR vann leikhlutann 30-15. Jón Norðdal Hafsteinsson skoraði 9 stig fyrir Keflavík í fyrsta leikhluta gegn Tindastól á Sauðarkróki en Keflavík var komið 27-13 yfir eftir fyrstu tíu mínútur leiksins. Arnar Freyr Jónsson skoraði 9 stig í fyrsta leikhlutanum í leik Grindavíkur og FSu í Röstinni í Grindavík. Grindavík er 29-15 yfir eftir fyrsta leikhlutann.
Dominos-deild karla Mest lesið KR-ingar komast ekki til Eyja: „Þetta er leiðindamál“ Íslenski boltinn Ungur samherji Elíasar særðist alvarlega í hnífsstungurárás Fótbolti Eðlileg skýring á tættum Laugardalsvelli Fótbolti Fóru yfir hauskúpuleik Garnachos: „Þetta var hræðileg innkoma“ Enski boltinn Kjartan tippar á leiki Arsenal og City út tímabilið Enski boltinn Kærasta Haalands ekki sátt þegar hann kemur allur klóraður heim Enski boltinn Spjótin standa að Jóni Degi og Freyr stígur inn á milli Fótbolti Shearer segir að leikmenn Newcastle hafi fleygt Howe undir rútuna Enski boltinn Ofurtölvan telur 73 prósenta líkur á að Arsenal verði meistari Enski boltinn Graði Norðmaðurinn steig fram og leiðrétti þjálfarann Fótbolti Fleiri fréttir Úlfarnir og Haukarnir með endurkomur Selfyssingar svöruðu fyrir sig Uppgjörið: Haukar - Keflavík 85-71 | Öruggt hjá Hafnfirðingum í fyrsta leik Martin næstum því með stig á mínútu í öruggum sigri Glímir við mikið áfall: „Ennþá smá dauður að innan“ Of mikil pása gæti verið slæm „Vildi að pabbi væri hérna“ Uppgjörið:Valur - Keflavík 90-74| Valsmenn sendu Keflavík í sumarfrí „Orðnar betri í að standa saman og klára leikinn“ Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 81-87 | Grindavíkurkonur byrja betur Keflavík hefur ekki unnið oddaleik í fimmtán ár Luke leiddi Lakers til sigurs í fjarveru Luka Hamar/Þór áfram í Bónusdeildinni eftir endurkomusigur Tryggvi góður en liðið tapaði leik sem þurfti að vinnast Kerr íhugar framtíð sína eftir tap í umspilinu Stighæsti leikmaður Ólympíuleikanna látinn Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Sindramenn og Blikar byrja vel Uppgjör: KR-Keflavik 83-91 | Keflavíkurkonur í undanúrslit Luka Doncic vann áfrýjunina og er gjaldgengur fyrir öll verðlaun NBA Oddaleikurinn færður vegna árshátíðar Curry hélt stríðsmönnunum á lífi Völdu kærustu hennar líka númer eitt Uppgjörið: Keflavík-Valur 88-81 | Keflavík tryggði sér oddaleik J. Cole slítur samningi sínum í Kína Olnbogi Ægis brotnaði „Þeir hefðu átt að henda honum út úr húsi fyrir þetta“ „Brugðumst vel við í krefjandi aðstæðum“ „Ætluðum okkur lengra en stoltur af liðinu“ „Ótrúlegar 50 mínútur af körfubolta“ Sjá meira