Kökuhús Pocahontas 19. desember 2008 06:00 Anna Björk Hilmarsdóttir varð í öðru sæti með indíánahúsið ásamt Katrínu Steinunni Antonsdóttur, Karen Ósk Óskarsdóttur og Soffíu Láru Snæbjörnsdóttur. Sigurvegarar í keppninni voru Ástrós Arnarsdóttir, Ásta Ólafsdóttir, Rakel Tara Þórarinsdóttir og Sylvía Kristín Stefánsdóttir. Stúlkurnar eru allar í tíunda bekk Álftamýrarskóla. fréttablaðið/gva
Anna Björk Hilmarsdóttir er nemandi í 10. bekk í unglingadeild Álftamýrarskóla og sinnir einnig starfi formanns nemendaráðs. Hún er liðtæk við piparkökuskreytingar en hún lenti ásamt liði sínu í fyrsta sæti skreytingakeppninnar í fyrra og varð í öðru sæti í ár. „Við fengum plöturnar tilbúnar en áttum að skreyta húsin sjálf. Við höfðum 80 mínútur til að skreyta og máttum koma með aukadót og liti. Við gerðum indjánahús og komum með indjánastrumpa að heiman og líka aukaliti sem við blönduðum í glassúr,“ segir Anna Björk en auk hennar í liðinu voru Katrín Steinunn Antonsdóttir, Karen Ósk Óskarsdóttir og Soffía Lára Snæbjörnsdóttir. Allir nemendur í 8., 9. og 10. bekk skólans tóku þátt í keppninni en einu sinni í viku er öll unglingadeildin saman í verkhring. Skreytingakeppnin er hluti af þeirri dagskrá. Miðað við árangur Önnu Bjarkar í þeim skreytingakeppnum sem farið hafa fram mætti ætla að hún sé bakarameistari af lífi og sál og láti til sín taka við smákökubakstur fyrir jólin. „Nei, ég er ekki dugleg að baka. Ég er bara dugleg að skreyta, en ég baka stundum Betty Crocker. Ef foreldrar mínir baka þá hjálpa ég kannski til. Ég borða samt rosalega mikið af smákökum fyrir jólin.“ En ætlar Anna Björk sér stóra hluti skreytingu piparkökuhúsa í framtíðinni eftir glæstan árangur í skólanum? „Já, ég stefni á að taka þátt í heimskeppnum,“ segir hún hlæjandi en þar sem þetta er síðasti veturinn hennar í skólanum tekur hún ekki þátt á næsta ári. „En það er aldrei að vita nema ég sendi hús í keppnina í Kringlunni.“ heida@frettabladid.is
Mest lesið Tengdadóttir forsætisráðherra í innsta koppi Loftssystkina Lífið Heitir og hýrir flugþjónar í suðrænni stemningu Lífið Emilíana Torrini einhleyp Lífið Benedikt og Sunneva Einars selja slotið Lífið Heitasti plötusnúður í heimi í Melabúðinni Lífið „Á erfitt með að gera mér í hugarlund eitthvað rómantískara“ Makamál „Vinkonusambönd virka aldrei ef það er afbrýðisemi“ Lífið Kári og Erla vilja 330 milljónir fyrir lúxusíbúð við höfnina Lífið Eiríkur og Guðrún selja eitt fallegasta hús Vesturbæjarins Lífið Edda Falak gaf bróður sínum nafna Lífið Fleiri fréttir „Eins og nýfráskilin kona á fjórða búbbluglasi“ Sjá meira