Tónlist

Gefa út Stjána saxófón

Hljómsveitin Pjetur og Úlfarnir hefur gefið út átta laga plötu.
Hljómsveitin Pjetur og Úlfarnir hefur gefið út átta laga plötu.

Hljómsveitin Pjetur og Úlfarnir hefur gefið út plötuna Pjetur og Úlfarnir 1978-1982. Hún hefur að geyma lög af tveimur fjögurra laga plötum sem sveitin gaf út á sínum tíma. Þar á meðal er lagið Stjáni saxófónn sem naut mikilla vinsælda.

Hljómsveitin var stofnuð árið 1977 af fjórum nemendum í Menntaskólanum í Hamrahlíð, þeim Eggerti Pálssyni, Kjartani Ólafssyni, Kristjáni Sigmundarsyni og Pétri Jónassyni. Nokkru síðar bættist Haraldur Baldursson í hópinn.

„Það eru þrjátíu ár síðan fyrri platan kom út. Við vorum að velta því fyrir okkur að það væri gaman að bjarga þessu á varanlegra form," segir Pétur. „Hún er alveg ófáanleg sú fyrri og það er líka erfitt að vita hvar hin er niðurkomin."

Pjetur og Úlfarnir er enn starfandi þrátt fyrir að hún hafi ekki gefið út nýtt efni í háa herrans tíð. Inni á milli æfinga spilar Eggert með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Haraldur er flugstjóri, Kjartan er tónskáld, Kristján er forstöðumaður og Pétur er klassískur gítarleikari, búsettur á Spáni. „Við erum alltaf að spila annað slagið. Ef það er farið mjög vel að okkur þá spilum við stundum og þá finnst okkur alveg rosalega gaman," segir Pétur. - fb








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.