NBA í nótt: 24 stig LeBron í fjórða leikhluta Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. janúar 2008 08:59 LeBron James var óstöðvandi í fjórða leikhluta í nótt. Hér reynir Anthony Parker að stöðva hann. Nordic Photos / Getty Images
LeBron James bætti félagsmet þegar hann skoraði 24 stig í fjórða leikhluta leiks Cleveland og Toronto sem fyrrnefnda liðið vann, 93-90. Alls skoraði James 39 stig í leiknum. Cleveland var þrettán stigum undir þegar fjórði leikhluti hófst, 70-57, en þá tók James til sinna mála. Hann skoraði úr átta af tíu skottilraunum sínum utan af velli. Chris Bosh skoraði 23 stig fyrir Toronto sem var mest með 20 stiga forskot í leiknum. Dirk Nowitzky skoraði 30 stig og Josh Howard bætti við 22 þegar að Dallas vann útisigur á Minnesota, 101-78. Þetta var áttundi tapleikur Minnesota í röð. Þá vann Memphis góðan heimasigur á Miami, 101-94. Þetta var sjöundi tapleikur Miami í röð en Dwyane Wade var stigahæstur í liðinu með átján stig, þrátt fyrir að hann hitti aðeins úr sjö af 20 skotum sínum utan af velli. Pau Gasol var stigahæstur hjá Memphis með 28 stig og hann tók þrettán fráköst þar að auki. San Antonio vann sex stiga sigur á LA Clippers, 88-82, á útivelli í nótt. Tony Parker var með 26 stig og Tim Duncan bætti við sautján og tók sautján fráköst þar að auki. Manu Ginobili lék með Spurs á nýjan leik efitr meiðsli og skoraði 23 stig. Úrslit annarra leikja: Washington Wizards - Seattle Supersonics 108-86 Charlotte Bobcats - Milwaukee Bucks 89-93Denver Nuggets - Philadelphia 76ers 109-96LA Lakers - Indiana Pacers 112-96
NBA Mest lesið Kristófer Acox kallar sig glæpamann Körfubolti Arnar Gunnlaugsson las yfir vælandi fýlupúkum hjá Real Madrid Fótbolti Littler kjörinn kynþokkafyllsti íþróttamaður heims Sport Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Enski boltinn Bein útsending: Arnar kynnir hópinn fyrir örlagastund Fótbolti Besta tenniskona heims tekur þátt í nýrri „Baráttu kynjanna“ Sport „Ég myndi ekki óska neinum þess að lenda í þessu“ Fótbolti Þurfti að kaupa nýjan iPhone fyrir alla í liðinu Fótbolti Fékk faðmlag frá konu Diogo Jota í miðju maraþoni Enski boltinn Sjáðu sigurmark Liverpool á móti Real Madrid og mörkin hjá Arsenal í Prag Fótbolti Fleiri fréttir Sömu félög að spila í tveimur íþróttum í sama húsinu á sama tíma Kristófer Acox kallar sig glæpamann Uppgjörið: Njarðvík - Hamar/Þór 88-61 | Auðsóttur sigur Njarðvíkinga Keflavíkursigur í kaflaskiptum leik Stjarnan með þægilegan sigur á nýliðunum Hverjir eru bestu ungu strákarnir í Bónus-deildinni? Söguleg byrjun OKC á tímabilinu Íslandsmeistararnir mæta bikarmeisturunum Skagamenn senda Kanann heim Tilþrif 5. umferðar: Jukic stal senunni Ólíkar niðurstöður hjá landsliðsmönnunum Er Tóti Túrbó ofmetinn? „Gott að við gátum verið liðið sem kláraði þetta“ Erfitt kvöld fyrir Ármann og Tindastól Tvöföld tvenna Tryggva í tæpu tapi Góður lokaleikhluti tryggði Njarðvík sigurinn Styrmir með þrettán í öruggum sigri Zamora Uppgjörið: Valur - KR | 93-100 | KR hafði betur í slag Reykjavíkurstórveldanna Diljá stórkostleg í lokin í endurkomu í Hveragerði „Einn af bestu leikmönnunum í sögu íslensks körfubolta“ Hlýtur að vera alvöru krísufundur í Valsheimilinu um helgina Besta byrjun Chicago Bulls síðan Jordan var í liðinu Blikar áfram með fullt hús stiga ÍR - Ármann 96-83 | Nýliðarnir enn í leit að fyrsta sigrinum „Bara feginn að við fundum þó leið“ Tindastóll - Stjarnan 96-95 | Ótrúlegur endir á Króknum „Við þurfum að vera betri varnarlega“ Íslenski körfuboltinn og Grindavík verðlaunuð NBA-leikmaður með krabbamein Haukur Helgi: Höfum ekki verið að spila góðan körfubolta Sjá meira