Matur

Sérrítriffli

Uppskrift af Nóatún.is

Fjöldi matargesta: 4

Sérrítriffli

0.5 l. rjómi, stífþeyttur

3 Stk. egg, þeytt

1 Stk. eggjarauða, þeytt

160 ml sykur

Sérrí

75 g. Súkkulaðispænir

5 Stk. Makkarónukökur, muldar

5 Stk. matarlímsblöð

Leiðbeiningar

Makkarónukökurnar eru muldar í 6 litlar skálar og bleytt vel í þeim með sérrí. Matarlímið er mýkt í köldu vatni, síðan látið leysast upp í 2 dl af sérrí yfir hægum hita. Þeytið eggin og eggjarauðuna saman með sykrinum þar til það er orðið að þykkum massa.

Blandið sérríi, matarlími, súkkulaðispæni og 2/3 af rjómanum varlega saman við. Setjið í skálar og látið kólna í minnst 4 tíma. Notið restina af rjómanum til skreytingar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.