Detroit færði Lakers fyrsta tapið 15. nóvember 2008 11:16 Rasheed Wallace og Allen Iverson skoruðu samtals 50 stig fyrir Detroit í sigrinum á Lakers í nótt NordicPhotos/GettyImages
LA Lakers varð í nótt síðasta liðið til að tapa leik í NBA deildinni í vetur þegar liðið lá fyrir Detroit Pistons á heimavelli 106-95. Þetta var áttundi sigur Detroit á Lakers í síðustu tíu leikjum liðanna, en Lakers liðið hafði unnið ellefu deildarleiki í röð í það heila ef talið er aftur á síðasta tímabil. Rasheed Wallace var með 25 stig og 13 fráköst hjá Detroit og Allen Iverson skoraði sömuleiðis 25 stig. Kobe Bryant skoraði 29 stig fyrir Lakers og komst í 21. sæti yfir stigahæstu leikmenn allra tíma í deildinni. Allen Iverson fór í 19. sætið og komst upp fyrir Elgin Baylor sem áður lék með Lakers. Iverson hefur skorað 21,156 stig á ferlinum. Denver vann fjórða leikinn af fimm síðan Chauncey Billups gekk í raðir liðsins þegar það lagði Boston á útivelli 94-85. Boston hafði unnið sex síðustu viðureignir liðanna og þetta var aðeins þriðji sigur Denver í Boston í síðustu 19 heimsóknum sínum. Chauncey Billups og Carmelo Anthony skoruðu 18 stig hvor fyrir Denver en Ray Allen skoraði 26 stig fyrir Boston og Paul Pierce 19. San Antonio vann nauman sigur á grönnum sínum í Houston 77-75 og Phoenix vann nauman sigur á Sacramento í framlengingu 97-95 þar sem Shaquille O´Neal skoraði 29 stig, hirti 13 fráköst og gaf 6 stoðsendingar hjá Phoenix. John Salmons skoraði 21 stig fyrir Sacramento og Brad Miller var með 20 stig, 11 fráköst og 7 stoðsendingar. New Orleans vann góðan sigur á Portland 87-82 í sjónvarpsleiknum á NBA TV, Milwaukee lagði Memphis 101-96 og Dallas tapaði sjöunda leiknum af níu þegar liðið lá heima fyrir Orlando 102-100. Philadelphia lagði Indiana á útivelli 94-92, Charlotte lagði Utah 104-96, Miami lagði Washington 97-77, New Jersey færði Atlanta annað tapið í röð með 115-108 sigri og New York lagði Oklahoma 116-106.
NBA Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Fleiri fréttir Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Sjá meira