Iceland Airwaves í útrás 26. september 2008 04:15 Íslendingar á London Airwaves. Bjarni Knútsson öryggisvörður, Sara María Eyþórsdóttir og Þorsteinn Stephensen stóðu vaktina í Rough Trade-plötubúðinni á Brick Lane. Þar fór miðasala fram fyrir London Airwaves um síðustu helgi.
Góður rómur var gerður að London Airwaves-hátíðinni sem haldin var um síðustu helgi. Þorsteinn Stephensen, eigandi Hr. Örlygs, segir að hátíðin verði haldin aftur á næsta ári og verið sé að skoða hvort Airwaves verði haldin í fleiri löndum í framtíðinni. Alls voru átta skemmtistaðir í Shoreditch-hverfinu í London lagðir undir fyrstu London Airwaves-hátíðina um síðustu helgi. Fjöldi hljómsveita og plötusnúða kom fram, allt listamenn sem teljast ungir og upprennandi. Nokkrar hljómsveitanna á London Airwaves eru væntanlegar á Iceland Airwaves í næsta mánuði, til að mynda Familjen, Pnau og Young Knives. Íslensku hljómsveitirnar Steed Lord og FM Belfast komu fram og vöktu talsverða athygli. Fjöldi Íslendinga sótti hátíðina heim og lét vel í sér heyra þegar Íslendingarnir stigu á svið. Allt púðrið í eina tunnuSteed Lord Svala Björgvins og strákarnir voru í góðu stuði á hátíðinni og vöktu talsverða lukku.Þorsteinn Stephensen, eigandi Hr. Örlygs, sá um framkvæmd hátíðarinnar ásamt fjölda Íslendinga. Þar á meðal voru Egill Tómasson, Sara María Eyþórsdóttir, Róbert Aron Magnússon og Bjarni Knútsson. Þorsteinn sagði í samtali við Fréttablaðið að hann væri nokkuð ánægður með hvernig hátíðin í London heppnaðist. „Ég hefði viljað sjá aðeins meiri sölu en annars er ég mjög ánægður. Við fengum mikla umfjöllun í fjölmiðlum og viðbrögðin voru alls staðar góð," segir hann. Um 2.300 gestir voru á hátíðinni auk rúmlega tvö hundruð blaðamanna. Þorsteinn er spurður hvort Hr. Örlygur hafi hagnast á hátíðinni í London. „Nei, en við vorum mjög nálægt núllinu. Við erum sjálfsagt að borga eitthvað með þessu. Við höfum áður haldið kynningartónleika fyrir Airwaves í Skandinavíu og í London og höfum verið að borga með þeim. Nú settum við bara allt púðrið í eina tunnu og það kemur svipað út. Þetta er bara markaðsátak og þau kosta alltaf sitt."Aðspurður viðurkennir Þorsteinn að ýmsir byrjunarörðugleikar hafi komið upp við framkvæmd London Airwaves. Þeir hafi þó allir reynst smávægilegir. „Við sáum eiginlega bara hversu allt tæknifólk og „crew" er gott á Íslandi. Þarna vorum við að vinna í fyrsta skipti með fólki og það gekk misvel." Hann segir að það hafi verið rétt ákvörðun að láta hátíðina aðeins standa í eitt kvöld, öfugt við þau þrjú eða fjögur eins og tíðkast hér á landi.Útrásin heldur áfram„Ég get staðfest að hátíðin verður haldin aftur í London næsta haust. Hvort það verður aftur á nákvæmlega sama stað á hins vegar eftir að koma í ljós," segir Þorsteinn sem segir að hátíðin í London hafi styrkt Airwaves-vörumerkið mikið. Það liggur því beint við að spyrja hann hvort ætlunin sé að halda áfram með útrásina, hvort Airwaves verði haldin í fleiri löndum á næstunni. „Við erum að skoða fleiri lönd. Ég vil ekki vera með neinar yfirlýsingar en við erum að velta þessu fyrir okkur."FM Belfast Þriggja manna útgáfa af hljómsveitinni spilaði á litlum tónleikastað í kjallara. Sveitin náði þó upp góðri stemningu meðal gesta, sem margir voru Íslendingar.Nú eru tæpar þrjár vikur í Iceland Airwaves-hátíðina og segir Þorsteinn að undirbúningur gangi vel. „Við sáum nokkur af þessum böndum úti í London og þau komu gríðarlega á óvart. Þetta verður sterk hátíð, enda hefur salan gengið vel. Við búumst við að það verði uppselt eins og hingað til." hdm@frettabladid.is
Mest lesið Matthías Már með krabbamein Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Lífið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lífið Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Lífið Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Lífið Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Fleiri fréttir Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Myndaveisla: „Við sprengjum þetta hús í loft upp“ Sheeran bað aðdáendur afsökunar „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð „Ég ætlaði í lögfræði en tónlistin tók völdin“ „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Fjórtán manns hita upp fyrir Mos Def í Gamla bíó Lifa í draumi og heiðra Eyfa Laufey djammaði með Robyn og Troy Sivan HAM boða endalok alls Ein langlífasta tónlistarhátíð landsins hefst í sautjánda sinn Afþakkar Grammy-tilnefningu Miley losar sig við eftirnafnið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Sjá meira