Arsenal án lykilmanna í Prag 6. nóvember 2007 14:56 Theo Walcott gæti fengið tækifæri gegn Slavia annað kvöld eftir frábæran leik í fyrri viðureign liðanna NordicPhotos/GettyImages
Leikmenn Arsenal eru nú farnir til Prag í Tékklandi þar sem þeir mæta Sparta í Meistaradeildinni annað kvöld. Arsene Wenger verður án nokkurra lykilmanna í leiknum annað kvöld. Hann hefur þannig ákveðið að gefa þeim Cesc Fabregas og Alexander Hleb frí frá leiknum eftir mikið álag undanfarið, en þeir Tomas Rosicky og Kolo Toure fara ekki með liðinu vegna meiðsla. Toure er meiddur á kálfa og Rosicky fær ekki að fara til heimalandsins vegna baráttu sinnar við nárameiðsli. Wenger hefur reyndar látið í veðri vaka að hann geri nokkrar breytingar á liði sínu frá leiknum við Manchester United um helgina, en Arsenal getur tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum keppninnar með hagstæðum úrslitum annað kvöld. Þeir Theo Walcott og Eduardo koma vel til greina í byrjunarliðiði í framlínunni við hlið Emmanuel Adebayor, en þeir hafa átt lipra spretti með liðinu þegar þeir hafa fengið tækifæri. Arsenal verður líka að teljast sigurstranglegra í leiknum eftir að hafa hamrað Tékkana 7-0 í fyrri leiknum á dögunum. Robin Van Persie og Philippe Senderos eru enn frá vegna meiðsla hjá Arsenal, en þeir ættu að geta komið aftur inn í hópinn á næstu tveimur vikum eða svo. Hópur Arsenal: Almunia, Sagna, Song, Gallas, Clichy, Eboue, Flamini, Gilberto, Diaby, Adebayor, Walcott, Lehmann, Diarra, Eduardo, Denilson, Hoyte, Traore, Bendtner.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Handbolti Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Fleiri fréttir „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla KSÍ fær 300 milljónir komist stelpurnar okkar á HM FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ Sjá meira