Biskup Íslands á mannamáli 26. október 2007 11:07 Ég ætla að ræða við biskup Íslands í næsta Mannamálsþætti mínum. Hann er að stíga út af fjörlegum hitafundi helstu klerka landsins þar sem samþykkt var tímamótayfirlýsing í þá veru að heimila prestum landsins að gefa saman samkynhneigð pör. Ég man vart eftir jafn tilfinningaríku Kirkjuþingi. Skammir, frammíköll og grátur á axlir. Það eru sterkar skoðanir á meðal presta landsins um réttindi homma og lesbía innan kirkjunnar - og óvíst hvort nokkur fjöldi hempuklæddra manna muni nokkurn tíma fást til að staðfesta samvist samkynhneigðra í kirkjum sínum. Heiftin er til staðar. Hommafóbía, segir Óskar H. Óskarsson prestur í Akureyrarkirkju í fréttum Stöðvar 2 um afstöðu margra klerka í þessu efni - og bætir því við að svo virðist sem mörgum þeirra hreinlega bjóði við samlífi fólks sem laðast að eigin kyni. Er þetta rétt? Biskup svarar því. Þetta verður spennandi samtal við Karl Sigurbjörnsson - sem vel að merkja innleiddi nýja siði sem sóknarprestur í Hallgrímskirkju á sínum tíma og opnaði hana upp á gátt fyrir samkynhenigðum. Ég er ekki frá því að það hafi gleymst. En þetta verður sumsé allt á mannamáli í þættinum mínum næsta sunnudagskvöld. Ég ætla einnig að yfirheyra Guðlaug Þór Þórðarson nýjan heilbrigðisráðherra um léttvínsbombuna. Hann kvikar hvergi frá þeirri skoðun sinna að leyfa sölu bjórs og veikra vína í matvörubúðum. Það verður gaman að sauma að Gulla - sem vel að merkja; skorar hátt í nýrri vinsældakönnun ráðherra. Svo munum við Gerður Kristný og Katrín Jakobs dæma bækur og eins ætla ég að tala um íslenskuna ylhýru við félaga Halldór Blöndal. -SER. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mannamál Sigmundar Ernis Mest lesið Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir Skoðun Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun