Leikjavísir

Hagnaður Nintendo tvöfaldast

Frá kynningu á Wii-leikjatölvunni seint á síðasta ári sem hefur reynst Nintendo gullnáma.
Frá kynningu á Wii-leikjatölvunni seint á síðasta ári sem hefur reynst Nintendo gullnáma.

Japanski leikjatölvurisinn Nintendo skilaði 132,4 milljörðum jena, jafnvirði 70,5 milljarða íslenskra króna, á öðrum og þriðja ársfjórðungi samanborið við 54,4 milljarða á sama tíma í fyrra. Þetta er rúmlega tvöfalt betri afkoma en í fyrra.

Mestu munar um mikla eftirspurn eftir Wii leikjatölvunni frá Nintendo um allan heim, sem hefur selst í 7,3 milljónum eintaka frá því hún kom á markað seint á síðasta ári en hún ber höfuð og herðar yfir hina keppinautana, Sony og Microsoft. Þá hefur sala á DS-leikjatölvum fyrirtækisins verið góð.

Fyrirtækið gerir ráð fyrir að enn muni bæta í söluna og reiknar með að á bilinu 16,5 til 17,5 milljón leikjatölvur verði komnar í hendur nýrra eigenda í lok mars á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.