Ítalir brjálaðir út í Dida Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. október 2007 13:45 Dida er ekki vinsælasti maðurinn á Ítalíu í dag. Nordic Photos / AFP
Knattspyrnuáhugamenn á Ítalíu eru alls ekki ánægðir með leikræna tilburði brasilíska markvarðarins Dida. Nokkrum sekúndum eftir að Glasgow Celtic skoraði annað mark sitt gegn Evrópumeisturum AC Milan í Meistaradeildinni í vikunni hljóp stuðningsmaður Celtic inn á völlinn. Hann hljóp upp að Dida og rétt virtist snerta hann. Dida byrjaði að elta hann en ákvað svo að láta sig falla í grasið. Hann var svo borinn af velli er hann hélt kælipoka við andlitið sitt. Myndband af atvikinu má sjá hér. Á heimasíðu Gazzetta dello Sport tóku meira en 60 þúsund manns þátt í atkvæðagreiðslu um hvort bæði Milan og UEFA ættu að refsa Dida fyrir athæfið. 83 prósent voru sammála því. Dagblöð á Ítalíu hafa látið Dida heyra það og segja að atvikið hafi verið táknrænt fyrir kvöldið. „Það er eins og að Dida hafi verið sleginn af sjálfum Mike Tyson,“ sagði einn blaðamaðurinn. Carlo Ancelotti, stjóri AC Milan, tók að hluta til undir gagnrýnina. „Hann ýkti þetta en þessi maður hefði ekki átt að hlaupa inn á völlinn.“
Ítalski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Logið upp á Einar Örn í dönskum miðlum Handbolti Myndaveisla: Gleðin við völd innan vallar sem utan Handbolti Óli Stef botnar ekkert í félagaskiptum Viggós: „Galin skipti“ Handbolti Óli Stef ósáttur við Guðmund: „Ekki fengið neina kennslu, þroska og pepp“ Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Kúbu: Aron gaf tóninn með glans Handbolti Er Jokic bara að djóka? Körfubolti „Svo sér maður þessi skot og það fer bara fiðringur um mann“ Handbolti Antony á leið til Betis Enski boltinn HM í dag: Næturvakt, kúkur á bíl og ömurlegur bílstjóri Handbolti „Ég eiginlega barði þetta í gegn“ Handbolti Fleiri fréttir Cecilía hélt enn einu sinni hreinu og Inter vann Í beinni: Everton - Tottenham | Moyes þarf sigur í Guttagarði Í beinni: Manchester United - Brighton | Ná Rauðu djöflarnir að tengja saman sigra? Misstu niður forystu þrátt fyrir að vera manni fleiri Fyrrverandi landsliðsmaður Englands mætir KSI í boxbardaga Segir Liverpool besta lið heims Antony á leið til Betis Fjármagnaði leikmannakaup Wimbledon með tölvuleikjaspilun Brynjólfur Willumsson á skotskónum í tapleik Groningegn Sex í röð hjá Napólí Juventus lagði AC Milan Ollie Watkins gerði Arsenal skráveifu Sjöunda tap Leicester í röð Núnez með tvö mörk í uppbótartíma Jónatan Ingi tryggði Val sigur á Fram Kluivert með þrennu í fyrsta leik dagsins Elísabet sögð vera að taka við belgíska landsliðinu FIFA setur forsetann í bann fyrir að kalla konu feita Haaland sagður fá yfir tólf milljónir í laun á dag næsta áratuginn Hákon skoraði í endurkomusigri Lille Samingur Haaland slæmar fréttir fyrir Alan Shearer Endrick tileinkaði Rüdiger mörkin sin: Hann hrósar mér aldrei Denis Law látinn Misstu niður tveggja marka forystu og bíða lengur eftir fyrsta sigri ársins Sara Björk skoraði á móti toppliðinu Arnar byrjar á því að fara á Anfield og horfa Hákon spila Hrósar Frey í erlendum miðlum: „Einn hæfileikaríkasti þjálfari Norðurlandanna“ Fer Garnacho frá Manchester United? Chelsea hefur áhuga Solskjær tekinn við Besiktas City búið að finna sinn Salah? Sjá meira