Leikjavísir

Tölvuleikur bannaður í Bretlandi

Búið er að banna dreifingu á tölvuleiknum Manhunt 2 í Bretlandi. Þetta er í fyrsta sinn í heilan áratug sem leikur er bannaður þar. Manhunt 2 er framhald Manhunt sem var mjög umdeildur á sínum tíma.

Upprunalegi leikurinn var bannaður börnum yngri en 18 ára þegar hann kom út árið 2003. Seinna var honum kennt um morðið á 14 ára dreng.

Stefan Pakeerah var stunginn og barinn til bana af hinum 17 ára Warren LeBlanc. Foreldrar Pakeerah vilja meina að morðinginn hafi verið undir áhrifum frá Manhunt.

Nefnd sem skoðar tölvuleiki áður en þeir fara á markað hefur fordæmt leikinn og segir hann hvetja til hrottafenginna morða. Það þýðir að ekki verður hægt að dreifa leiknum löglega í Bretlandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.