Phoenix vann nauðsynlegan sigur 9. maí 2007 13:15 Amare Stoudemire NordicPhotos/GettyImages
Phoenix lagði San Antonio á nokkuð sannfærandi hátt 101-81 í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Vesturdeildarinnar í NBA í nótt. Staðan í einvíginu er því orðin jöfn og næstu tveir leikir fara fram í San Antonio. Cleveland náði 2-0 forystu gegn New Jersey með sigri á heimavelli. Þjálfari Phoenix stokkaði upp í liði sínu og gerði breytingar eftir tapið í fyrsta leiknum og lét Kurt Thomas í byrjunarliðið til að dekka Tim Duncan og lét framherjann Shawn Marion gæta leikstjórnandans Tony Parker. San Antonio var yfir eftir fyrsta leikhlutann, en síðan tóku heimamenn völdin og unnu nauðsynlegan sigur. Amare Stoudemire skoraði 27 stig og hirti 9 fráköst fyrir Phoenix, Steve Nash skoraði 20 stig og gaf 16 stoðsendingar og Raja Bell skoraði 18 stig. Tim Duncan skoraði 29 stig og hirti 11 fráköst fyrir San Antonio en fékk litla hjálp frá félögum sínum í þetta skiptið. Tony Parker og Bruce Bowen skoruðu 13 stig hvor og Manu Ginobili var ósýnilegur í sókninni annan leikinn í röð með aðeins 6 stig. Cleveland vann sigur á New Jersey 102-82 í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Austurdeildarinnar og hefur nú náð 2-0 forystu í einvígi liðianna þegar næstu tveir leikir fara fram í New Jersey. Rétt eins og í fyrri leiknum voru það yfirburðir Cleveland í fráköstunum (49-32) sem höfðu mikið að segja um niðurstöðuna. LeBron James var öflugur í liði Cleveland og skoraði 25 af 36 stigum sínum í síðari hálfleik. Hann gaf auk þess 12 stoðsendingar. Sasha Pavlovic setti persónulegt met í úrslitakeppni með 17 stigum. Hjá New Jersey skoraði Vince Carter 26 stig, Richard Jefferson skoraði 22 stig og Jason Kidd skoraði 17 stig, hirti 10 fráköst og gaf 8 stoðsendingar.
NBA Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Foreldrarnir að rifna úr stolti: Gunnlaugur manifestaði birtu eftir erfitt vor Golf Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Fótbolti HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn Fótbolti Komst á US Open-mótið með son Tiger Woods sem kylfusvein Golf Krakkarnir fá frí í skólum vegna HM og foreldrarnir vinna heima Fótbolti Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Enski boltinn Fleiri fréttir Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Sjá meira