Viðskipti innlent

Milestone gerir 70 milljarða yfirtökutilboð í Invik í Svíþjóð

Karl Wernersson, stjórnarformaður Milestone.
Karl Wernersson, stjórnarformaður Milestone. Mynd/GVA
Fjárfestingafélagið Milestone hefur lagt fram 70 milljarða króna yfirtökutilboð í sænska fjármálafyrirtækið Invik og Co. eftir kaup á 26 prósenta hlut í dag sem tryggir Milestone 63 prósent atkvæða í Invik. Stjórn Invik mælir með að hluthafar taki tilboðinu, en þetta er ein stærstu fyrirtækjakaup Íslandssögunnar. Kaupin eru háð blessun fjármálayfirvalda í þremur löndum.

Fjármögnun vegna kaupanna eru tryggð. Fjárfestingabankarnir Bear Stearns og Morgan Stanley hafa verið Milestone innan handar við kaup og fyrirhugaða yfirtöku auk þess að fjármagna hluta kaupverðsins..

Invik er með víðtæka starfsemi á sænskum trygginga- og fjármálamarkaði auk þess sem félagið rekur sérhæfða bankastarfsemi í Lúxemborg. Invik er skráð í OMX í Stokkhólmi og stefnir Milestone að því að taka félagið af markaði. Heildartryggingaiðgjöld samstæðunnar námu um tólf milljörðum króna í fyrra, eignir í umsýslu í verðbréfasjóðum námu um 162 milljörðum króna og í eignastýringu eru um 98 milljarðar króna.

Sænska fjármálafyrirtækið hefur vaxið mikið á liðnum árum og starfrækir tryggingafélögin Moderna Forsäkringar og Moderna Forsäkringar Liv, sem bjóða fjölbreyttar tryggingar á sænska markaðnum, og fyrirtækin Assuransinvest, Banque Invik og Invik Funds. Í tilkynningu segir að margvísleg tækifæri liggi í samstarfi Askar Capital og Sjóvá, dótturfélaga Milestone, og þessara fyrirtækja.

„Invik & Co fellur mjög vel að öðrum eignum Milestone. Við höfum stefnt að sterkari stöðu á norrænum fjármálamarkaði með áherslu á tryggingastarfsemi og sérhæfða fjármálaþjónustu. Við lítum á yfirtökuna sem einstakt tækifæri til að skjóta styrkari stoðum undir rekstur og efnahag Milestone og treysta til muna stöðu Sjóvá og Askar Capital. Það liggja mikil tækifæri í samþættingu og samvinnu þessara eininga," segir Karl Wernersson, stjórnarformaður Milestone, í tilkynningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×