Leikjavísir

Spá sexföldum hagnaði hjá Sony

Viðskiptavinur kaupir PS3 leikjatölvuna frá Sony í fyrra.
Viðskiptavinur kaupir PS3 leikjatölvuna frá Sony í fyrra. Mynd/AFP

Gengi hlutabréfa í japanska hátækniframleiðandanum Sony hækkaði talsvert í dag og hefur ekki verið hærra í fimm ár. Ástæðan fyrir hækkuninni er spá japanska viðskiptablaðsins Nikkei að hagnaður Sony muni sexfaldast á árinu.

Blaðið bendir á að sala á flatskjám Sony muni aukast á þessu ári og því næsta auk þess sem gert er ráð fyrir að sala á PlayStation 3 leikjatölvunni muni glæðast á árinu.

Spáir blaðið því að hagnaður fyrirtækisins fyrir skatta og gjöld muni nema allt að 400 milljörðum jena, jafnvirði 222 milljarða íslenskra króna. Afkomutölur Sony fyrir síðasta ár liggja enn ekki fyrir en gert er ráð fyrir að hagnaður fyrirtækisins fyrir skatta muni nema 60 milljörðum jena, jafnvirði rúmra 33 milljarða íslenskra króna. Mestu munar um mikinn kostnað við nýju leikjatölvuna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.