United að valta yfir Roma 10. apríl 2007 19:34 Alan Smith skoraði annað mark United í kvöld AFP
Manchester United hefur yfir 4-0 þegar flautað hefur verið til hálfleiks í síðari viðureign liðsins gegn Roma í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Valencia hefur yfir 1-0 gegn Chelsea á heimavelli sínum og er því í vænlegri stöðu í einvíginu. Leikurinn á Old Trafford hefur verið eign Manchester United frá fyrstu mínútu. Michael Carrick kom liðinu yfir á 11. mínútu með skoti utan teigs, Alan Smith skoraði annað markið á 17. mínútu og Wayne Rooney batt enda á laglega sókn aðeins tveimur mínútum síðar og kom heimamönnum í vænlega stöðu. Hinn frábæri Cristiano Ronaldo skoraði svo fjórða markið á 44. mínútu og gerði nánast út um einvígið. Chelsea er ekki í góðri stöðu á Spáni þar sem liðið er 1-0 undir gegn sterku liði Valencia. Fernando Morientes skoraði mark heimamanna á 32. mínútu en leikurinn hefur verið mjög skemmtilegur á að horfa. Didier Drogba átti mjög gott færi undir lok hálfleiksins þegar hann átti þrumuskalla að markinu, en Canizares sá við honum með góðri markvörslu. Chelsea þurfti alltaf að skora á Mestalla til að eiga möguleika á að fara áfram, svo útlitið gæti verið svartara fyrir enska liðið.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Handbolti Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Fleiri fréttir Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla KSÍ fær 300 milljónir komist stelpurnar okkar á HM FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Sjá meira