Hljómsveit öfganna 24. ágúst 2007 08:00 Hljómsveitin Liars hefur ætíð farið sínar eigin leiðir í tónlistarsköpun og leggur áherslu á kraftmikla og hugmyndaríka sköpun öðru fremur.
Ein sérstæðasta hljómsveit nútímans, Liars, fagnar þessa dagana útkomu nýrrar breiðskífu. Steinþór Helgi Arnsteinsson lagði við hlustir og grúskaðist fyrir um sveitina. Angus Andrew, Aaron Hemphill og Julian Gross eru mennirnir á bakvið bandarísku sveitina Liars, sem á rætur sínar að rekja til Kaliforníu þó heimahöfn hennar í dag sé New York. Sveitin hefur reyndar gengið í gegnum þó nokkrar mannabreytingar en aldrei hefur það breyst að Angus (sem er reyndar fæddur í Ástralíu) hefur verið aðaldrifkraftur og stjórnandi sveitarinnar. Fyrsta plata Liars, They Threw Us All in a Trench and Stuck a Monument on Top, kom út árið 2001 og lenti í iðu dans-pönk senunnar sem þá grasseraði í New York. Eitthvað virðist það hafa farið í taugarnar á meðlimum Liars sem þóttust vera að gera eitthvað miklu meira skapandi, krefjandi og þróaðra en útþynnt dans-pönkið.StefnubreytingLiars sýndi það svo og sannaði á næstu plötu sinni, þemaplötunni They Were Wrong, So We Drowned, árið 2004 að sveitin ætlaði ekki að vera viðriðin einhverja afmarkaða senu. Platan tók kollhnís aftur á bak frá frumburðinum, hoppaði upp í flikk flakk og sendi fyrstu plötunni loks fingurinn. Þvílík var umbreytingin.Meðlimum sveitarinnar varð hins vegar á í messunni og platan varð alltof öfgafull. Tilraunamennskan sleppti algjörlega af sér beislinu og úr varð plata sem varla er hægt að hlusta á í einni runu. Sérstaklega mæli ég ekki með að gera slíkt í háværum heyrnatólum.Tromman ekki dauðNæsta plata, Drum’s Not Dead, kom út í fyrra en þar feta meðlimir sveitarinnar hinn gullna meðalveg skapandi og þróaðrar tilraunamennsku með hæfilegri blöndu af öfgum. Innihaldi Drum’s Not Dead verður best lýst með nafni plötunnar og á henni fara meðlimir sveitarinnar hamförum en platan var unnin á meðan hljómsveitarmeðlimirnir bjuggu í Berlín. Drum’s Not Dead hlaut mikið lof gagnrýnenda og persónulega er ég alltaf að uppgötva betur og betur snilli hennar. Án efa með betri plötum síðasta árs. Loks orðinn lagasmiðurNú, rétt rúmlega ári eftir útgáfu síðustu plötu, er fjórða breiðskífan komin út í Evrópu. Platan er samnefnd sveitinni og við fyrstu hlustanir virðist hún draga saman í einn sarp helstu atriði fyrri verka Liars. Hér er aftur leitað til post-pönk tímans nema í stað áhrifa frá Gang of Four og A Certain Ratio er hljómurinn meira í ætt við þyngri sveitir þess tíma og no-wave hljómsveita, sem fram komu á sjónarsviðið stuttu seinna. Til dæmis finnst mér eins og lagið What Would They Know vera eins og Joy Division að gera ábreiðu af laginu Point That Finger Somewhere Else með ný-sjálensku sveitinni The Clean. Tilraunamennskan er aldrei langt undan og eins og svo oft áður er taktur plötunnar mest megnis byggður í kringum trommuslátt. Fyrrnefndur leiðtogi, Angus Andrew, sagði reyndar nýlega að þetta væri fyrsta plata Liars þar sem honum liði eins og alvöru lagasmiði.Merkileg plata og líklega eitt það besta sem framsækið rokk hefur alið af sér á árinu. Að lokum má hvetja alla til þess að sækja tónleika með Liars. Átakanleg upplifun sem veldur fiðringi um líkamann frá upphafi til enda.
Mest lesið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Lífið Úr Idolinu yfir í útvarpið Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Lífið Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Lífið Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Lífið Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Lífið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Lífið Frumsýning á Vísi: Rokkað á miðju gólfi komin sjö mánuði á leið Tónlist Hjem til jul aftur á skjáinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Frumsýning á Vísi: Rokkað á miðju gólfi komin sjö mánuði á leið „Þetta er sem betur fer ekki upp á líf og dauða“ Ævintýrin hófust þegar hann hafnaði Juilliard Enginn súr í sætu teiti í Ásmundarsal „Ég fæ morgnana til að vera bara ég“ Rokkþyrstir geta tekið gleði sína á ný Sigga Ózk verður Ariana Grande og flytur til Noregs Ávísun á eilíf vonbrigði að elta góða veðrið Frumsýning á Vísi: Landsliðsmaður gefur út lag með pabba sínum Taylor Swift jafnaði met Beyoncé á VMA Myndaveisla: Ofurfjör á Októberfest Sáu ekki fyrir sér vinsældirnar en fagna nú 36 árum Sergio Mendes höfundur Mas Que Nada látinn Gáfu tóndæmi af Barfly í beinni Aldrei séð annað eins: IceGuys seldi nítján þúsund miða Herra Hnetusmjör stoltur eftir tryllta afmælishelgi Samtalið órjúfanlegur hluti af sköpuninni Ótrúlega slakandi raftónlistarhátíð í fimmtánda skiptið Segir Marr hafa stöðvað endurkomu The Smiths Fjörutíu blaðamönnum boðið en enginn mætti Stormaði út með látum en gafst svo upp á skrifstofustarfinu Dásamar Charlie XCX þrátt fyrir orðróminn Slíðra sverðin og boða endurkomu sveitarinnar Snorri valinn á lista 20 undir 30 hjá tímaritinu IQ Valin á lista efstu tuttugu hjá Norðurlöndunum Helgi Björns með splunkunýtt tónlistarmyndband Chappell Roan biður um frið: „Konur skulda ykkur ekki skít“ Aron Can með stóra tónleika erlendis Haustinu fagnað með tónleikum á Kaffi Flóru Nýdönsk og ADHD fá hvorar tvær milljónirnar Sjá meira