Eftir því sem árin liðu afskrifuðu fleiri og fleiri leikinn og hættu að taka mark á fréttum um þróun hans. Þegar tilkynningarnar um frekari seinkanir bárust hlustuðu fáir, en öðrum var sama.
Nú þegar meira en tíu ár eru liðin síðan þróun leiksins hófst, eru fleiri farnir að fylgjast með fréttum um leikinn. Það er þó ekki af einskærum áhuga á leiknum sjálfum heldur eingöngu til þess að geta hlegið að vitfirringu framleiðendanna og óbilandi baráttu þeirra við að gera leik sem kemur líklega aldrei út.
Á tíu árum hefur Duke Nukem Forever spilað á nánast allan tilfinningaskala leikjaunnenda, frá eftirvæntingu til áhugaleysis, frá vonbrigðum til skellihláturs. Hér verður farið yfir sorgarsögu þessa leiks.

Janúar: Starfsmenn 3D Realms byrja formlega að búa leikinn til.
Apríl: Leikurinn er kynntur almenningi, útgáfa er áætluð um mitt ár 1998. Quake II grafíkvélin er valin.
Ágúst: Sýnishorn úr leiknum birtist í leikjatímaritinu PC Gamer.
1998
Maí: Myndband úr leiknum er sýnt á E3 leikjaráðstefnunni við góðar viðtökur.
Júní: 3D Realms skipta úr Quake II grafíkvélinni yfir í Unreal-vélina. Útgáfu leiksins er frestað til 1999.

Mars: Aftur er skipt um grafíkvél, nú er það uppfærð útgáfa af Unreal-vélinni.
Desember: 3D Realms sendir jólakort sem gefur í skyn að leikurinn komi út árið 2000.
2000
Desember: Leikjaútgefandinn Gathering of Developers tekur við dreifingarmálum Duke Nukem Forever.
Desember: 3D Realms senda annað jólakort, nú er ýjað að því að leikurinn komi út árið 2001.
2001
Maí: Annað myndband úr leiknum er birt á E3-leikjaráðstefnunni. Eftirvæntingin nær hámarki.
Ágúst: Gathering of Developers fer á hausinn. Fyrirtækið Take Two tekur að sér dreifingu leiksins.

Mars: 3D Realms ræður fjölda forritara sem endurskrifa stóran hluta leiksins. Aftur er skipt um grafíkvél, yfir í frumútgáfu af Unreal 2.0 vélinni. Hópurinn sem vinnur að leiknum telur nú yfir þrjátíu manns.
2003
Janúar: Tilkynning birtist á spjallborðsvef 3D Realms sem segir að leikurinn komi út „þegar hann er tilbúinn".
Maí: Forstjóri Take Two, dreifingaraðila leiksins, segir leikinn líklega ekki munu koma út á árinu. George Broussard, yfirmaður leikjahönnunar hjá 3D Realms, svarar á spjallborði með skilaboðunum „Take Two should STFU imo", sem gæti útlagst „Ég held að Take Two ætti bara að halda kjafti".
Desember: Sami forstjóri segist nú telja að leikurinn komi út í lok 2004 eða byrjun árs 2005.
2004
September: Leikjavefurinn GameSpot tilkynnir að Duke Nukem Forever hafi enn og aftur skipt um grafíkvél, yfir í Doom 3 vélina. Broussard þvertekur fyrir þetta og segir um misskilning að ræða.

Apríl: Prey, leikur sem forritarar 3D Realms voru einnig að vinna að, er kynntur á E3-leikjaráðstefnunni. Ekki er minnst einu orði á Duke Nukem Forever.
2006
Febrúar: Í viðtali segir George Broussard að þróun Duke Nukem Forever gangi vel, og sé að mestu leyti lokið. Aðeins eigi eftir að fínpússa nokkra hluti áður en leikurinn kemur út.
Apríl: Örfá sýnishorn úr leiknum birtast á netinu.
Júní: Forsvarsmenn dreifingaraðilans, Take Two, bjóða 3D Realms hálfa milljón dala í bónus ef þeir gefa leikinn út fyrir lok ársins. Broussard segir það ekki koma til greina, hann myndi aldrei gefa leik út of snemma fyrir svo lítinn pening.
Ágúst: Fregnir herma að margir lykilstarfsmenn 3D Realms hafi hætt. Fyrirtækið tekur fyrir að leiknum seinki vegna þess.
2007
Janúar: George Broussard auglýsir eftir fleiri forriturum, með auglýsingunum birtast agnarsmá sýnishorn úr leiknum. Nokkrir nýir starfsmenn eru ráðnir.
Júní: Lítið sýnishorn birtist í leikjatímaritinu Game Informer. Útgáfudagur leiksins er enn „þegar hann er tilbúinn".
Júlí: Enn sést hvorki tangur né tetur af Duke Nukem Forever.