Djass fyrir austan 28. júní 2007 07:00 Árni Ísleifsson hefur haldið úti djasshátíð á Héraði í tvo áratugi. Hún hefst í kvöld og teygir sig niður á Firði.
Djasshátíð Egilsstaða á Austurlandi, ein elsta sérhæfða tónlistarhátíðin utan Reykjavíkur, er nýhafin. Hátíðin varð til fyrir tuttugu árum í sumarblíðu á Egilsstöðum og varð að veruleika sumarið 1988. Síðan hefur hún fest sig í sessi þótt frumkvöðullinn, Árni Ísleifsson, hafi á tíðum látið hafa eftir sér að nú skorti hann þrek til að halda hátíðinni áfram. Fyrsta hátíðin, sumarið 1988, skartaði þekktum mönnum úr djasslífinu: Jón Múli og Viðar Alfreðsson voru báðir á staðnum, þjóðkunnir fyrir sinn skerf til djassmenningar landans. Yngri kynslóðin lét sig heldur ekki vanta. Síðan er mikið vatn runnið til sjávar frá Héraði og úr sölum hátíðarinnar hafa margir tónar liðið inn í sumarkvöldin þar eystra. Hátíðin nú er enn að stærstu verk Árna þótt hann hafi notið aðstoðar yngri manna við bókanir. Mörg fyrirtæki að austan og með starfsemi um land allt, allan heim, leggja henni nú lið með fjárhagslegum stuðningi. Í kvöld spilar Hrafnaspark, sem er tríó frá Akureyri, sérhæft í sígaunadjassi í anda Django Reinhardt. Þar verður einnig framlag frá Djasssmiðju Austurlands. Verður hátíðin sett á Hótel Héraði en það er einn þeirra staða sem verða virkir í samkomuhaldi hátíðarinnar næstu daga: Á fimmtudagskvöld verður djassað í Hótel Egilsbúð í Neskaupstað. Þar verður Djasssmiðjan aftur á ferð, ungir djassarar af Austurlandi og Flís að auki. Á föstudagskvöld verða stórtónleikar í Herðubreið á Seyðisfirði með erlendum gestum: James Carter blásari fer þar fremstur. Þessi fjölhæfi saxófónleikari er fæddur í Detroit í Bandaríkjunum og vakti snemma athygli fyrir saxófónleik sinn. Hann hefur leikið með fjölda snillinga og til að nefna nokkra Herbie Hancock, Lester Bowie, Buddy Tate og Cyrus Chestnut. Carter leikur jöfnum höndum á allar gerðir saxófónsins og hefur verið valinn besti baritónsaxófónleikari heims í hinu virta DownBeat tímariti fimm sinnum. James er ekki einn gesta að koma fram það kvöld: Deitra Farr er ekki ókunnug okkur Íslendingum. Hún kom fram á hátíðinni með Vinum Dóra 1992 og kom hingað til lands aftur 2005. Í bæði skiptin var hún aufúsugestur og hreyfði við hjörtum þeirra sem heyrðu. Hún kemur fram í Herðubreið með Riotinu, þeim Birni Thoroddsen, Ásgeiri Óskarssyni, Dóra Braga, Jóni Rafnssyni og nafna hans Ólafssyni hljómborðsleikara. Þeir troða síðan upp með Deitra, Andreu Gylfadóttur og Gospelkór Fjarðabyggðar á stórtónleikum í Kirkju- og menningarmiðstöðinni á Eskifirði. Það mun sjóða á keipum þann daginn í góðviðrinu en fjörið hefst kl. 14. Í sömu mund hefjast afmælistónleikar hátíðarinnar uppi á Héraði: fyrst með ræðuhöldum því þar verður Árni Ísleifsson heiðraður sérstaklega fyrir framlag sitt til tónlistarlífs á Íslandi og síðan dagskrá fram undir kvöldmat: þar koma fram Blúsbrot Garðars Harðar, Pitch Fork Rebellion, minnst verður Lesters Young, Riot kemur fram eftir snöggan bíltúr af gospeltónleikunum á Eskifirði, Sean Walsh Band spilar, Narodna Musika leggur sitt til hátíðahaldsins og loks hita Jagúarmenn sig upp fyrir lokadansleik hátíðarinnar sem verður frá 22 um kvöldið í Valaskjálf. Þá skal Skjálfin nötra. Áhugasamir geta kynnt sér hátíðina á vefsíðunni www.jea.is. Svo er bara að setjast í bíla og leggja af stað ellegar ná sér í flug, í versta falli fljúga sjálfur.
Tengdar fréttir Bláir skuggar í Hafnarborg Norski málarinn Kjell Nupen opnar sýningu á málverkum og grafíkverkum í Hafnarborg í Hafnarfirði í dag. Sýningin er farandsýning sem hefur göngu sína hér en fer síðan til þriggja annarra safna: Safnsins á Haugum í Vestfold í Noregi, Safns trúarlegrar listar og Kastrupgaard-safnsins í Danmörku. Ferðalagið er styrkt af norska sendiráðinu í Kaupmannahöfn og Norræna menningarsjóðnum. 28. júní 2007 06:30 Mest lesið Krummi kveður pabba sinn Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið Joy Harmon er látin Bíó og sjónvarp Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Lífið Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Lífið Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið Gaylord Focker deyr ekki drottni sínum Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „GusGus gera sexý lög og Birnir er einfaldlega sexý beast“ „Við teljum að þetta verði sögulegir tónleikar“ Ástir og átök milli Laufeyjar og Hudsons Williams Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Laufey Lín sló í gegn á Coachella Myndaveisla: Skagarokk haldið í fyrsta skipti síðan 1994 Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Sautján þúsund miðar seldir á Kaleo Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Sex þúsund miðar seldust upp á innan við mínútu Barnsleg gleði, kynþokki og óhugnaður Björk treður upp í Hafnarfirði í sumar „Þú munt verða stórkostleg söngkona“ Söguleg stund í KR heimilinu Falinn gjóður vann Músíktilraunir Segist skilin út undan vegna MAGA-tengingar sinnar Elegans og elskhugar í eftirpartýi hjá Laufeyju Óvæntustu deilur ársins: „Ég hata ekki börn“ Jay-Z breytir um nafn... aftur Laufey sigursælust og Todmobile heiðruð Birnir fær gullplötu fyrir Dyrnar Hringdu kannski-stjarnan orðin mamma Áhrifamestu augnablikin í Kórnum: Flókin líkamsímynd, Bieber-aðdáun og sungið á íslensku Herra Hnetusmjör er söngvari ársins „Takk fyrir mig Ísland, mitt draumaland“ Myndaveisla: Töfrandi stemning á stórtónleikum Laufeyjar Boy George keppir fyrir San Marínó Hollt að sinna húsverkum og fá engin hrós Opna Laufeyjarverslun fyrir tónleikana „Þú ert stærsta súperstjarnan á plánetunni jörð“ Sjá meira
Bláir skuggar í Hafnarborg Norski málarinn Kjell Nupen opnar sýningu á málverkum og grafíkverkum í Hafnarborg í Hafnarfirði í dag. Sýningin er farandsýning sem hefur göngu sína hér en fer síðan til þriggja annarra safna: Safnsins á Haugum í Vestfold í Noregi, Safns trúarlegrar listar og Kastrupgaard-safnsins í Danmörku. Ferðalagið er styrkt af norska sendiráðinu í Kaupmannahöfn og Norræna menningarsjóðnum. 28. júní 2007 06:30