Viðskipti innlent

Unity byggir upp 20 milljarða króna safn í Bretlandi

Fjárfestingarfélagið Unity Investments hefur látið til skarar skríða í bresku verslanakeðjunni Debenhams og heldur nú utan um 4,87 prósenta hlut sem metinn er á 7,7 milljarða króna. Kaupin vekja athygli fyrir þær sakir að eigendur Unity, Baugur Group, FL Group og Kevin Stanford ráða för í House of Fraser, einum helsta keppinauti Debenhams.

Unity er umsvifamikill fjárfestir skráðum félögum í breska smásölugeiranum og hefur byggt upp áhrifastöður í tískuverslunarkeðjunni French Connection og verslunarkeðjunni Woolworths auk nærri þrjátíu prósenta hlutar í herrafatakeðjunni Moss Bros. Heildarvirði þessara eignarhluta auk bréfanna í Debenhams nemur um tuttugu milljörðum króna.

Sérfræðingar telja að Unity horfi á að gott kauptækifæri hafi myndast í bréfum Debenhams fremur en að félagið ætli sér að ráðast til yfirtöku. Hlutabréf í Debenhams hafa fallið hratt á síðustu mánuðum, eða um rúm 22 prósent frá áramótum í kjölfar þriggja neikvæðra afkomuviðvarana. Fjárfestingasjóðir settu Debenhams aftur á hlutabréfamarkað fyrir rúmu ári síðan á genginu 195 pens á hlut. Hluturinn stóð í gær í 146 pensum. „Við trúum því að þetta sé strategísk fjárfesting þar sem er verið er að nýta sér veikleika í hlutabréfaverði," segir Richard Ratner hjá Seymour Pierce í samtali við Scotsman.

Þessar fregnir komu skömmu eftir að Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs, sagði í samtali við Reuters-fréttastofuna að fjárfestingargeta Baugs eins og sér væri um 75 milljarðar króna, 600 milljónir punda.

Baugur ætti að þekkja vel til Debenhams sem sérleyfishafi keðjunnar á Norðurlöndum. Hagar, dóttur­félag Baugs, reka Debenhams-verslun í Smáralind.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×