Góðar myndir í boði í dag 16. apríl 2007 09:15 Diana á yfirgefnum leikvelli í yfirgefnum bæ Kvikmyndagerðarkonan Tone Grøttjord kynntist síðustu íbúum í smábænum Prirechnyy í Rússlandi. Mynd/Motlys - Thorstein Nodland
Annað eins framboð á fínum heimildarmyndum þekkist vart utan hátíða. Það er dagur heimildarmyndarinnar í dag. Í Háskólabíói verður frumsýnd myndin Tímamót eftir þá félaga Guðmund Erlingsson og Herbert Sveinbjörnsson. Hefst sýningin kl. 17. Hefur verið fjallað nokkuð um myndina hér í blaðinu og víðar en hún er merkilegt tillegg í umræðu um jafnréttismál hér á landi. Aðalpersónur hennar eru þrír elskulegir menn sem standa á ákveðnum tímamótum en þeir eru í fyrsta sinn að eignast sitt eigið heimili. Á sama tíma verður sýnd frábær mynd eftir ungan norskan leikstjóra um yfirgefinn námabæ í norðurhluta Rússlands á vegum Reykjavik Documentary Workshop. Myndin er sýnd í Tjarnarbíói í samstarfi við kvikmyndaklúbbinn Fjalaköttinn. Myndin er frá 2006 og er 52 mín. að lengd. Hún fjallar um íbúa rússneska bæjarins Prirechnyy, sem hafa fengið bréf frá stjórnvöldum Murmansk-sýslu um að bærinn þeirra sé ekki lengur til. Þrátt fyrir það neita um sjötíu eldri borgarar að yfirgefa þennan fyrrverandi námubæ. Við kynnumst fjórum þeirra í skrítinni og smárri veröld þeirra í Norður-Rússlandi. Eru það einkum konurnar sem eru þungamiðjan og eru örlög þeirra ógleymanleg í nærfærinni túlkun leikstjórans, sem vann verkið strax eftir nám. Tone Grøttjord nam kvikmyndafræði við National Film and Television School í Bretlandi. Grøttjord hefur unnið fyrir framleiðslufyrirtækið Motlys síðan 2003. Prirechnyy er fyrsta mynd hennar í fullri lengd. Fimmtudaginn síðasta var Kvikmyndaklúbbi Akureyrar hleypt af stokkunum með sýningu ítölsku myndarinnar Non ti muovere í Nýja bíó. Þeir halda áfram fyrir norðan: á morgun, 18. og 20. apríl verða sýndar þrjár myndir frá kínverska menningarsvæðinu í Borgarbíói. Sýningar hefjast kl. 18.00 og er aðgangur ókeypis. Gestum er boðið að skrá sig í KvikYndi, Kvikmyndaklúbb Akureyrar. Hér sunnan heiða heldur áfram glæsilegri dagskrá Fjalakattarins í Tjarnarbíó. Utan Prirechnyy eru hefur klúbburinn sýningar á myndum franska kvikmyndagerðarmannsins Raymond Depardon. Næstu þrjár helgar sýnir klúbburinn átta myndir eftir hann í samstarfi við Franskt vor á íslandi. Herlegheitin hefjast með þrjúbíói í dag þar sem fyrsti hluti þríleiksins „Bændurnir“, tíu ára kvikmyndaverkefnis Depardon þar sem hann skrásetur breytingar í landbúnaði, verður sýnd. Á morgun verða síðan sýndir tveir hlutar af þremur úr verkefninu „Blaðamenn“ þar sem Depardon fylgir eftir frambjóðanda í kosningaham og kynnir sér líf paparazzi-ljósmyndara. Í kvöld endursýnir Fjalakötturinn enn fremur kínversku kvikmyndirnar Kyrrmynd og Dong en þær verða sýndar á Akureyri um næstu helgi. -
Mest lesið Magnaðar myndir af lengstu á landsins Lífið Sjóðheitar og einhleypar inn í haustið Lífið Kristófer Helga í veikindaleyfi Lífið Enginn súr í sætu teiti í Ásmundarsal Tónlist „Það eru komnir þrír mánuðir síðan pabbi minn sá fram á það að geta ekki lifað lengur“ Lífið Seldu Kolbeini Sigþórs og keyptu í miðbænum Lífið Ebba Katrín og Oddur keyptu hús í miðbænum Lífið Segir Murphy gera lítið úr kynferðisofbeldi Bíó og sjónvarp Frumsýning á Vísi: Helga Braga í kolsvartri kómedíu Bíó og sjónvarp Lítill bróðir mættur: „Fullkominn, stór og sterkur“ Lífið Fleiri fréttir Segir Murphy gera lítið úr kynferðisofbeldi Frumsýning á Vísi: Helga Braga í kolsvartri kómedíu Tæpur helmingur íbúa hefur séð myndina Kynntu dagskrá RIFF 2024 Þakkaði fyrir sig á íslensku Shogun á spjöld sögunnar á Emmy verðlaunahátíðinni Snerting framlag Íslands til Óskarsins „Myndin byggir á minni eigin lífsreynslu“ Hlátur og grátur á Ljósvíkingum Ljósbrot valin besta norræna kvikmyndin Frumsýning á Vísi: Fyrsta stiklan úr Svörtu söndum 2 Ældi næstum úr stressi á Cannes Myndaveisla: Rauður dregill og troðfullt hús á Ljósbroti Snerting hlaut eftirsótt verðlaun Snerting tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Jökull í Kaleo í Glæstar vonir Ljósbrot í forvali til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna Ólafur Darri og Hera Hilmars saman á skjánum í fyrsta sinn Lynch ólíklegur til að leikstýra aftur vegna Covidhræðslu Stórstjörnur í kvikmynd um fundinn í Höfða Sjá meira