Shogun verðugir sigurvegarar 2. apríl 2007 07:00 Shogun sigruðu Músíktilraunir í ár með feykiöflugu rokki sínu. MYND/Hrönn
Úrslit Músíktilrauna fóru fram síðastliðið laugardagskvöld í porti Listasafns Reykjavíkur. Að lokum stóð harðkjarnasveitin Shogun uppi sem verðugur sigurvegari. Heilt yfir var keppnin flott í alla staði og úrslitakvöldið sérlega glæsilegt. Fyrsta hljómsveit upp á svið, reyndar önnur þar sem Foreign Monkeys höfðu hitað salinn upp á undan, var Soðin skinka. Piltarnir sýndu ágæta takta og fluttu sæmilegt fjósaglysrokk. Hip Razikal var síðan önnur landsbyggðasveit, bjó yfir fjölbreyttum hljóm en var smá þreytandi til lengdar og þarf aðeins að vanda sig betur. Þriðja hljómsveit kvöldsins kom úr Grafarvoginum og hét The Portals. Sveitin var ein af tveimur nýbylgjusveitum kvöldsins, lék vel flutt og grípandi gítarokk í anda Franz Ferdinand og The Killers. Nokkuð vantaði þó upp á kraftinn í söngnum. Hin nýbylgjusveitin, Loobyloo, var líkt og The Portals gríðarlega efnileg, fínar pælingar voru í gangi en sveitin þarfnast mikillar mótunar. Tvær háskólapönkrokksveitir settu svo skemmtilegan svip á keppnina. Hljómsveitirnar hétu Magnyl og SkyReports og báðar þessar sveitir gátu státað sig af ógnar grípandi hljómum sem voru vel framkallaðir. Magnyl voru þó ögn betri enda státuðu af fínum íslenskum textum á meðan SkyReports þökkuðu meðal annars einu sinni fyrir sig með því að segja „Thank you“, án efa kjánalegasta atvik kvöldsins, fyrir utan kannski þegar Björn Ingi afhenti aðalverðlaunin. The Custom og Spooky Jetson voru síðan aðrar tvær hljómsveitir af svipuðu meiði. Sálarfullt retrórokk með proguðum undirtóni en báðar tvær náðu ekki að skapa sinn eigin stíl og lögin voru alltof langdregin. Hæfileikana vantaði samt ekki. En þá komum við að sveitunum sem skipuðu þrjú efstu sætin. Gordon Riots, sem endaði í þriðja sæti, og sigurvegararnir, Shogun, voru heldur betur í þéttari kantinum og voru áberandi drífandi og lifandi í flutningi sínum. Gordon Riots hafði innanborðs mikil gæði og síðasta lagið fær fullt hús stiga. Shogun hafði það hins vegar fram yfir Gordon Riots að þora að fara út fyrir rammann og var að gera nokkuð frumlegri hluti, bauð upp á flottar hraðabreytingar og sumar fléttur sveitarinnar voru við það að rífa mann í sundur, slíkur var krafturinn og þunginn. Sannarlega vel að sigrinum komin en harðkjarnasveit hefur ekki sigrað í Músíktilraunum síðan 2001 þegar Andlát fór með sigur af hólmi. Sveitin í öðru sæti,
Mest lesið Matthías Már með krabbamein Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Lífið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Lífið Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lífið Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Fleiri fréttir Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Myndaveisla: „Við sprengjum þetta hús í loft upp“ Sheeran bað aðdáendur afsökunar „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð „Ég ætlaði í lögfræði en tónlistin tók völdin“ „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Fjórtán manns hita upp fyrir Mos Def í Gamla bíó Lifa í draumi og heiðra Eyfa Laufey djammaði með Robyn og Troy Sivan HAM boða endalok alls Ein langlífasta tónlistarhátíð landsins hefst í sautjánda sinn Afþakkar Grammy-tilnefningu Miley losar sig við eftirnafnið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Sjá meira