Himneskur svanasöngur 15. mars 2007 07:45 Kammerkórinn Carmina flytur stórvirki endurreisnartónmenntanna um helgina.
Kammerkórinn Carmina frumflytur Requiem eða Sálumessu eftir spænska endurreisnartónskáldið Tomás Luis de Victoria á tónleikum í Kristskirkju um helgina. Victoria var fremsta tónskáld Spánverja á 16. öld og sálumessan var hans mesta meistaraverk. Verk þetta var samið við andlát Maríu keisaraynju Spánar árið 1603, en Victoria hafði verið hirðtónskáld hennar um áratuga skeið. Sálumessan er samin fyrir sex radda kór og tónlistin er sérlega áhrifamikil, enda hefur verkinu verið lýst sem „einum af hápunktum endurreisnarinnar“. Söngkonan Erna Blöndal líkir verkinu við ferðalag í hæstu hæðir. „Þetta er eins og að vera komin til himnaríkis,“ segir hún, „það felur í sér óskaplega mikla slökun þótt það sé mikið fyrir haft að flytja það. Þegar maður nær tökum á tónlistinni er þetta næst því að komast til himnaríkis.“ Erna útskýrir enn fremur að verkið sé með því mest krefjandi sem söngvarar takast á við, bæði raddlega og tilfinningalega. Auk sálumessunnar mun kórinn flytja verk sem tengjast sálumessum eftir endurreisnartónskáldin Cristóbal de Morales og Josquin des Prez. Sálumessa Victoria var ekki aðeins tækifærisverk sem heiðraði minningu hefðarkonu því verkið er einnig svanasöngur tónskáldsins sem samdi ekki fleiri verk þau átta ár sem hann átti eftir ólifuð. Aukinheldur er þess getið í texta er fylgir efnisskránni að breski tónlistarfræðingurinn Bruno Turner hefur kallað verkið „sálumessu fyrir 16. öldina“. Á þessum árum stóð tónlistarheimurinn á tímamótum. Þetta má til sanns vegar færa því að tónlistarheimurinn stóð á tímamótum einmitt um þetta leyti. Árið 1605, sama ár og sálumessan kom út á prenti, gaf Claudio Monteverdi út fimmtu madrígalabók sína og tveimur árum síðar var fyrsta ópera hans færð upp við hirðina í Mantova. Hinn nýi og tilfinningaþrungni barokkstíll hafði litið dagsins ljós og ekki var langt í að fjölröddun endurreisnarinnar hyrfi að mestu af sjónarsviðinu. Sálumessa Victoria er eitt síðasta meistaraverk gamla stílsins og líkt og fjöldi annarra verka frá sama skeiði býr hún enn yfir fegurð og dýpt sem snertir við okkur fjórum öldum síðar. Kammerkórinn Carmina var stofnaður sumarið 2004 með það að markmiði að flytja kórtónlist endurreisnarinnar á Íslandi. Meðlimir kórsins eru allir þrautþjálfaðir söngvarar og hafa hlotið mikilsverða reynslu innan kóra á borð við Graduale Nobili, Hamrahlíðarkórinn, Hljómeyki, Mótettukór Hallgrímskirkju og Schola cantorum. Kórinn var valinn Tónlistarhópur Reykjavíkur 2005 og vakti mikla athygli þegar hann söng ásamt breska sönghópnum The Tallis Scholars á tónleikum í Langholtskirkju fyrir rúmu ári. Fram undan er tónleikaferð til Svíþjóðar þar sem Carmina kemur fram á Stockholm Early Music Festival, helstu tónlistarhátíð Svíþjóðar sem tileinkuð er endurreisnar- og barokktónlist. Á tónleikunum í Kristskirkju munu fjórir söngvarar úr BBC Singers, The Tallis Scholars og Westminster Abbey-kórnum í Lundúnum slást í lið með félögum í Carminu. Stofnandi Kammerkórsins Carminu og stjórnandi á tónleikunum er Árni Heimir Ingólfsson, tónlistarfræðingur og dósent við Listaháskóla Íslands. Tónleikarnir hefjast kl. 16 báða dagana. Miðasala fer fram í 12 tónum og í safnaðarheimili Kristskirkju fyrir tónleikana.
Mest lesið Krummi kveður pabba sinn Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið Joy Harmon er látin Bíó og sjónvarp „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið Gaylord Focker deyr ekki drottni sínum Bíó og sjónvarp Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Lífið Fleiri fréttir „GusGus gera sexý lög og Birnir er einfaldlega sexý beast“ „Við teljum að þetta verði sögulegir tónleikar“ Ástir og átök milli Laufeyjar og Hudsons Williams Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Laufey Lín sló í gegn á Coachella Myndaveisla: Skagarokk haldið í fyrsta skipti síðan 1994 Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Sautján þúsund miðar seldir á Kaleo Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Sex þúsund miðar seldust upp á innan við mínútu Barnsleg gleði, kynþokki og óhugnaður Björk treður upp í Hafnarfirði í sumar „Þú munt verða stórkostleg söngkona“ Söguleg stund í KR heimilinu Falinn gjóður vann Músíktilraunir Segist skilin út undan vegna MAGA-tengingar sinnar Elegans og elskhugar í eftirpartýi hjá Laufeyju Óvæntustu deilur ársins: „Ég hata ekki börn“ Jay-Z breytir um nafn... aftur Laufey sigursælust og Todmobile heiðruð Birnir fær gullplötu fyrir Dyrnar Hringdu kannski-stjarnan orðin mamma Áhrifamestu augnablikin í Kórnum: Flókin líkamsímynd, Bieber-aðdáun og sungið á íslensku Herra Hnetusmjör er söngvari ársins „Takk fyrir mig Ísland, mitt draumaland“ Myndaveisla: Töfrandi stemning á stórtónleikum Laufeyjar Boy George keppir fyrir San Marínó Hollt að sinna húsverkum og fá engin hrós Opna Laufeyjarverslun fyrir tónleikana „Þú ert stærsta súperstjarnan á plánetunni jörð“ Sjá meira