Lífið

Tveir á teikniborðinu

David Jones er höfundur GTA leikjanna og Lemmings. Nú eru tveir nýir leikir væntanlegir og þeir sagðir vera rosalegir.
David Jones er höfundur GTA leikjanna og Lemmings. Nú eru tveir nýir leikir væntanlegir og þeir sagðir vera rosalegir.

Tölvuleikjahönnuðurinn David Jones hefur ekki komið nálægt tölvuleikjunum Lennings eða Grant Theft Auto í lengri tíma, þrátt fyrir að vera enn titlaður höfundur þeirra.

David þessi er mikil goðsögn í tölvuleikjaiðnaðinum og er nú farinn af stað með nýtt fyrirtæki, Real Time Worlds. Fyrirtækið er með tvo tölvuleikjatitla í þróun núna, leikina Crackdown og All Points Bulletin.

Nýlega fékk fyrirtækið 31 milljón dollara styrk til að þróa þessa leiki ennþá betur og segja raddir í tölvuleikjabransanum að þarna séu á ferðinni leikir sem munu gera allt vitlaust. Bíða menn spenntir eftir þessari nýjustu afurð Davids, sem hefur haldið sig til hlés undanfarin ár. Báðir leikirnir koma út á Xbox 360 og á PC heimilis- og einkatölvur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.