Hætturnar og hagsmunir breytast 28. október 2006 00:01 Ef fer sem horfir verður árið 2006 methagnaðarár fyrirtækja í Kauphöll Íslands. Fyrstu uppgjör síðasta ársfjórðungs líta nú dagsins ljós. Hagnaðartölur sem nú birtast eru utan skynsviðs venjulegs fólks. Hagnaður Kaupþings banka eins nemur rúmum 67 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins sem er nánast sama fjárhæð og aflaverðmæti allra íslenskra skipa á síðasta ári. Nú skal því haldið til haga að þessi góða afkoma stafar að hluta til af uppskeru sem sáð var til þegar farsælt ferðalag Kaupþings og Bakkavarar hófst fyrir áratug eða svo. Engu að síður er fjármálageirinn kominn upp fyrir sjávarútveg sem hlutfall af landsframleiðslu og sívaxandi hluti greinarinnar flokkast sem útflutningstekjur. Þetta er veruleiki sem horfa verður til þegar rýnt er í hagsmuni samfélagsins. Í pólitískri umræðu er tilhneiging til að gleyma að á skömmum tíma hefur samsetning verðmætasköpunar þjóðarinnar gjörbreyst. Slíkt kallar á að ýmislegt sem talið hefur verið til sjálfsagðra sanninda verði tekið til skoðunar. Nefnd um Ísland sem fjármálamiðstöð var sett á laggirnar af Halldóri Ásgrímssyni. Það var skynsamleg ráðstöfun og niðurstaða nefndarinnar var lögð fyrir ríkisstjórnina í gær. Þar er að finna tillögur sem eru innlegg í umræðu um framtíðarhagsmuni þjóðarinnar. Enda þótt sjávarútvegur verði ein mikilvægasta atvinnugrein okkar enn um sinn, þá er síminnkandi hlutur hennar í verðmætasköpun þjóðarinnar. Taka verður tillit til greinarinnar þegar framtíðin er mótuð. Eins og umræðan hefur verið er hins vegar stundum látið eins og hagsmunir sjávarútvegs skipti þjóðina máli. Hagsmunina þarf til framtíðar að skoða í víðara ljósi, ekki síst þegar horft er til nauðsynlegrar umræðu um kosti og galla aðildar að Evrópusambandinu og upptöku evru. Þegar framtíðartækifæri okkar eru annars vegar eru ógnirnar sjaldnast langt undan. Eftir því sem umsvif íslenskra fyrirtækja verða meiri erlendis því meiri hætta er á að reynt verði að koma höggi á hagsmuni fyrirtækjanna. Slíkt var reynt á fyrri hluta ársins og það verður reynt á ný. Fjármálafyrirtækin og Viðskiptaráð brugðust við bábiljum í erlendri umfjöllun, en von er á meiru og því ljóst að stjórnvöld þurfa líka að leggja niður fyrir sér hvernig á að taka á dylgjum og sögusögnum og hvort ekki sé tilefni til að mæta slíku af hörku. Slík umfjöllun er stundum sprottin af vanþekkingu, stundum af illvilja og fordómum og oft ekki síður af því að einhverjir telja hagsmunum sínum ógnað. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hafliði Helgason Skoðanir Mest lesið Landráðabrigsl og skrípaleikir Einar Kárason Skoðun Íbúðalán í raunheimum: Svar við athugasemdum Gauta B. Eggertssonar Agnar Tómas Möller Skoðun Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir Skoðun EES eða ESB – þar er efinn Dóra Sif Tynes Skoðun Hinn háværi minnihluti Unnar Geir Unnarsson Skoðun Af hverju ég kýs Já 29. ágúst Halldór Jörgen Olesen Skoðun Yfir 2.000 til 3000 milljarða tap á 15 - 17 árum – og enginn ber ábyrgð Sigurður Sigurðsson Skoðun Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson Skoðun Lesum í sumar – börnin okkar fylgjast með Jón Heiðar Gunnarsson Skoðun Draugasögur nútímans Ingólfur Sverrisson Skoðun
Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir Skoðun
Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson Skoðun
Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir Skoðun
Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson Skoðun