Valsstúlkur hömpuðu bikarnum 10. september 2006 10:00 Bikarinn er okkar. Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari Vals, heldur fast um bikarinn eftir leikinn. MYND/Valli
Markadrottningin Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði þrennu fyrir Val í gær þegar liðið mætti Breiðablik í bikarúrslitaleik kvenna, staðan var 3-3 eftir venjulegan leiktíma og framlengingu og því gripið til vítaspyrnukeppni. Þar voru það Valsstúlkur sem nýttu allar fjórar spyrnur sínar á meðan Blikastúlkur skoruðu aðeins úr einni og því er Valur tvöfaldur meistari í kvennaflokki 2006. "Þetta er alveg meiriháttar og frábært að ná sigri eftir þennan kaflaskipta leik. Við vildum þetta bara meira held ég og það skilaði sér. Það er alveg klárt mál að bæði lið hefu hæglega getað unnið þennan leik, Breiðablik átti ekki skilið að tapa en það áttum við ekki heldur. Við fengum ekki að fagna í síðustu viku þegar við urðum Íslandsmeistarar en nú ætlum við heldur betur að bæta upp fyrir það," sagði Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari Vals, eftir leikinn í gær. "Í svona leik verður allt að vera til staðar. Dóra María er farin til Bandaríkjanna og gat ekki leikið með okkur í þessum leik og þar með misstum við ákveðið bit úr sóknarleiknum. Maður kemur í manns stað og liðið stóð sig frábærlega í dag," sagði Elísabet. Fyrir tímabilið voru margir sem héldu að Breiðablik myndi einoka titlana þetta tímabil en önnur er raunin. "Þetta er ekki ósvipað og í fyrra þegar allir héldu að við myndum taka þetta, þá unnu þær tvöfalt og það sat í okkur. Það er ekkert gefið í þessu." bikarmeistara 2006 Valsstúlkur tóku báða stóru bikarana á tímabilinu. fréttablaðið/valli Valur fékk óskabyrjun í leiknum en Margrét Lára skoraði stórglæsilegt mark beint úr aukaspyrnu strax á fjórðu mínútu. Guðrún Sóley Gunnarsdóttir hafði þá brotið á Margréti og var heppin að fá aðeins að líta gula spjaldið frá Einari Erni Daníelssyni, dómara leiksins. Eftir þetta vöknuðu Blikastúlkur og tóku völdin á vellinum, það skilaði sér í marki á 26. mínútu þegar Elín Anna Steinarsdóttir skoraði skallamark eftir hornspyrnu Gretu Mjallar Samúelsdóttur. Margrét Lára skaut framhjá úr góðu færi áður en Breiðablik tók forystuna og aftur kom markið eftir hornspyrnu. Boltinn barst úr þvögunni í teignum og út á Ólínu Guðbjörgu Viðarsdóttur fyrirliða sem var ekkert að hika og skoraði gott mark. Breiðablik fékk nokkur mjög góð færi til að komast tveimur mörkum yfir en Valur hafði heppnina með sér, Ásta Árnadóttir var til dæmis stálheppin að skora ekki sjálfsmark snemma í seinni hálfleik. Það var svo á 57. mínútu sem Valur jafnaði en þá misreiknaði vörn Breiðabliks langa sendingu og Margrét Lára náði að skora. Bæði lið fengu færi til að tryggja sér sigurinn í venjulegum leiktíma en ekki tókst það. Breiðablik endurheimti forystuna á elleftu mínútu framlengingar en þá átti varamaðurinn Fanndís Friðriksdóttir fyrirgjöf sem rataði á Ernu Björk Sigurðardóttur sem skoraði. En í byrjun seinni hluta framlengingarinnar slapp Margrét Lára ein í gegn og kláraði vel. Stuttu síðar vildi hún fá vítaspyrnu en ekkert var dæmt. Lokafærið fékk hin reynslumikla Guðlaug Jónsdóttir fyrir Breiðablik en Valur náði að bjarga á síðustu stundu.
Íslenski boltinn Íþróttir Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Enski boltinn HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Handbolti Fleiri fréttir „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Madrídingar á tæpasta vaði Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Davíð Snær skoraði gegn toppliðinu Fram án þriggja gegn KR Guðmundur lagði upp í sigri á meisturunum Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Aron spilar með Joselu og Rodrigo Stefna stelpurnar okkar næst til Svíþjóðar og Danmerkur? Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Aron Einar snýr aftur til Katar Stuðningsmenn gengu berserksgang og þjálfarinn fann fyrir því Segja Frey hafa logið að leikmönnum Haaland fær frí vegna jarðarfarar Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Dagskráin í dag: Sjáðu City í deildabikarnum Sjá meira