Lífið

Dýr áramót í Chicago

Vantar þig hugmynd að skemmtilegum áramótum? Lausnina gæti verið að finna á Peninsula-hótelinu í Chicago. Áramótapakkinn í ár er tvær nætur á svítunni með kampavíni og kavíar eins og þú getur í þig látið. Og þú mátt meira að segja taka handsaumaða baðsloppinn með þér heim þegar dvölinni lýkur. Þjónustulundað starfsfólkið hjálpar þér svo að slá upp samkvæmi fyrir allt að hundrað manns á hótelinu, þar sem væri tilvalið að spóka sig um með nýja hundrað karata demantahálsmenið. Svona rétt að lokum má geta þess að með öllu saman kostar pakkinn rétt tæpar tvö hundruð milljónir króna. En sé hann staðgreiddur ætti að vera óþarfi að gefa vikapiltinum þjórfé!








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.