Mobile connect á Íslandi 8. september 2005 00:01
Á heimasíðu Ogvodafone er greint frá nýrri og spennandi þjónustuleið fyrirtækisins í fjarskiptum. Vodafone kynnir nú Mobile Connect þjónustu sína á Íslandi núna í September og hleypir svo af stað í beinu framhaldi Blackberry þjónustu í október sem farið hefur sigurför um heiminn. Nú þegar eru 3,5 milljónir notanda að Blackberry og eykst sú tala sífellt. Með Mobile Connect þjónustu fyrirtækis getur notandi tengst þráðlausu neti fyrirtækis fyrirhafnarlaust hvar sem er innan svæðis þess með sérstöku netkorti. Mobile Connect notar svokallaða GPRS/EDGE fjarskiptatækni sem tengir notandann við internetið. GPRS staðallinn eykur flutningshraðann margfalt innan GSM kerfisins og virkar tæknin einnig erlendis. Einnig er unnið að EDGE væðingu á höfuðborgarsvæðinu og Eyjafirði sem gerir netkortinu kleyft að velja hröðustu tenginguna sem er í boði hverju sinni. Finnst okkur hér á geim þetta bjóða ýmsa spennandi möguleika fyrir netspilun og geta leikjanotendur valdið usla í netspilun á kaffihúsum sem og í skírnum með þráðlausri Mobile connect tækni. Samkvæmt Ogvodafone verður eingöngu greitt fyrir niðurhal en ekki fyrir hvern þann tíma sem notandi er tengdur. Ekki líkur dýrðunum hjá Ogvodafone því einnig kynna þeir Blackberry tæknina sem er samkvæmt kynningu Ogvodafone alhliða samskiptatæki sem er náskylt Gsm-tækninni en tekur á móti og sendir rafpóst eins og hver önnur tölva. Blackberry er alltaf tengt netinu og gerir notanda mögulegt að fylgjast með öllu og einnig nota svokallaða "push" tækni sem gerir það að óþarfa að þurfa þjappa skrám eða aðhafast mikið varðandi netnotkun símans því allar sendingar eru í rauntíma og taka mun minna pláss en ella. Blackberry er einnig með 20 lykla QWERTY lyklaborði og stórum skjá. http://www.ogvodafone.is
Baddi Geim-Fréttir Leikjavélar Mest lesið Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Lífið Ice Spice fór á klósettið á OTO Lífið „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Bíó og sjónvarp Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Bíó og sjónvarp Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Gagnrýni Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Lífið Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Lífið Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Tónlist „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Lífið Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Lífið Fleiri fréttir Blood of Dawnwalker: Tíminn er þinn helsti óvinur Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Sjá meira