Star Wars Battlefront 2 í vinnslu 22. apríl 2005 00:01
Framhaldið af mest selda Star Wars leik allra tíma mun bæta við sig geimbardögum, spilanlegum jedi persónum og efni úr STAR WARS: EPISODE III REVENGE OF THE SITH myndinni LucasArts hefur tilkynnt um útgáfu á Star Wars Battlefront™ II, en það var tilkynnt á Star Wars ráðstefnunni, Star Wars Celebration III. Leikurinn verður gefinn út í haust á PlayStation 2, Xbox og PC. Star Wars Battlefront II tekur mest selda Star Wars leik allra tíma skrefinu lengra með nýjum geimbardögum, spilanlegum Jedi persónum, og glænýjum umhverfum teknum beint úr Star Wars: Episode III Revenge of the Sith myndinni. Aðdáendur fyrri Star Wars Battlefront leiksins munu einnig fá að upplifa nýja “single-player” upplifun þar sem leikmenn fara í gegnum stórbrotna sögu þar sem ákvarðanir þeirra hafa áhrif á vígvöllinn, og reyndar allan Star Wars heiminn. Það er fyrirtækið Pandemic Studios sem mun þróa leikinn fyrir LucasArts. “Fyrri leikurinn var gríðarlega vinsæll og við ætlum að byggja á þeim árangri og gera Star Wars Battlefront II miklu betri á alla mögulega vegu,” segir John Geoghegan, Markaðs- og sölustjóri LucasArts. “Í Star Wars Battlefront, unnum við með starfsfélögum okkar hjá Lucasfilm til að geta gefið út leikinn samhliða DVD útgáfunni á gömlu myndunum. Herferðin í kringum Star Wars Battlefront II verður mun stærri og munum við nota stóra samstarfsaðila og beina spjótum okkar að uppstillingu í verslunum.” Star Wars Battlefront II mun bæta við “single-player” hluta leiksins með opnum herferðum sem sækja innblástur sinn í allar sex Star Wars myndirnar. Söguþráður leiksins spannar meira en 12 nýja staði, og eru margir þeirra úr Episode III, þar á meðal Mustafar og geimbardagan við Coruscant. Einnig verða í leiknum klassísk Star Wars atriði, þar sem leikmenn berjast inní Death Star og einnig bregður fyrir Tantive IV, sem kom fyrir í Episode IV A New Hope. Þar að auki geta lekmenn á vissum stöðum beitt fyrir sig Jedi kröftum og barist sem Jedi riddarar. Í fyrsta skipti geta leikmenn farið í geimbardaga og í sama bardaga farið um borð í geimskip óvinarins og ráðist á innviði þess. Þegar leikmenn byrja fótgangandi inní stórum geimskipum, geta þeir valið sér minni geimskip og barist við óvinina í geimnum. Þar geta þeir einnig farið um borð í stærri geimskip óvinarins, yfirtekið þau, mannað byssurnar eða unnið skemmdir inní skipunum. Leikmenn geta einnig valið um að vera bara inní sínu geimskipi og varið það frá árásum óvinarins. Valið er þeirra. Netspilunin sem gerði fyrri leikinn að því sem hann er, verður í Star Wars Battlefront II, nema mun stærri í sniðum. Einnig geta fleiri leikmenn keppt í einu á hverjum netþjóni eða allt að 24 á PlayStation 2, 32 á Xbox og 64 á PC.
Geim-Fréttir Leikjavélar Leikjavísir Mest lesið Nakinn á kóræfingu Lífið „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Menning Laufey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar Lífið Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Menning Síðasti leynigesturinn opinberaður Lífið „Skýið er bleikt og við erum sannarlega enn þá á því skýi og í sjokki“ Lífið „Hvernig ég er að gera þetta núna er ekki hægt til lengri tíma“ Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal Lífið Fleiri fréttir Láta reyna á heilasellurnar og samvinnuna Leikirnir sem beðið er eftir Sjá meira