Umgjörð
Að auki þess að elta uppi “Deck of 52” fær málaliðinn heilan helling af skemmtilegum aukaverkefnum frá hinum ýmsu vinnuveitendum. Málaliðinn getur kosið að vinna fyrir Sameinaðar þjóðir, Suður-Kóreu, Mafíuna eða Kína. Þessir vinnuveitendur eru málaliðanum vinveittir svo lengi sem verkin eru unnin og málaliðinn gerir ekkert til að ergja viðkomandi því þá minnkar vináttan og getur breyst í óvinveitt ástand. Þrátt fyrir óvinveitt ástand getur málaliðinn greitt háa upphæð og komist í mjúkin aftur til að fá fleiri verkefni.
Peningar eru aðalatriði fyrir málaliðann og með peningum er hægt að gera þrælskemmtilega hluti eins og kaupa farartæki, loftárásir og alls kyns vopn og birgðir sem er mjög fínt í erfiðum aðstæðum inni á bardagavellinum. Þegar líða tekur á leikinn bætist í vopnabúrið sem málaliðinn getur verslað úr.
Spilun
Landsvæðið í leiknum er ansi stórt og er skipt niður eftir hersetu. Málaliðinn getur dulbúið sig inni á óvinasvæðum og flakkað um óáreittur svo lengi sem hann hegðar sér eðlilega og forðist yfirmenn sem geta borið kennsl á hann. Málaliðinn getur hnuplað öllum faratækjum og hirt öll þau vopn sem hann kemst yfir en hann getur bara borið tvö vopn á sér hverju sinni. Hann getur kallað á hermenn til að manna byssurnar á farartækjum sem hann hefur hertekið ef hann óskar þess og þeir vinveittir eða mannað byssurnar sjálfur.
Málaliðinn getur hnuplað þyrlum og flogið um og er það alveg frábær skemmtun. Einnig er meiriháttar að geta kallað á loftárásir með annaðhvort stórskotaliði eða frá herþotum.
Grafík og hljóð
Grafík og hljóðvinnsla leiksins er fín og framsetningin með því betra sem gerist, allar upplýsingar og kort af landsvæðum flæða í gegnum “PDA” tæki málaliðans sem gerir honum auðvelt fyrir að fylgjast með gangi mála í stríðinu.
Tónlistin er fjölbreidd eftir hersetusvæðunum og stigmagnast þegar hasar er í aðsigi og virkar sem ágætis viðvörun.
Það er mikið líf í þessum leik og alveg endalausir möguleikar í gangi til að skemmta sér við. Mercenaries býður uppá þrælskemmtilega afþreyingu fyrir alla hasarunnendur.
Niðurstaða
Frábær hasarleikur í anda GTA með ótal möguleikum og frjálsum aðferðum til að klára verkefni. Nútíma söguþráður sem á erindi í dag gefur honum skemmtilegt raunveruleikagildi í amstri dagsins.
Vélbúnaður: Playstation 2
Framleiðandi: Pandemic
Útgefandi: Lucasarts
Vefsíða: www.lucasarts.com/games/mercenaries/




