Tíska og hönnun

Flottust í tauinu

Tímaritið Vanity Fair hefur loksins birt lista sinn yfir best klæddu alþjóðlegu stjörnurnar. Meðal þeirra sem prýða listann eru leikkonan Sienna Miller og fyrirsætan Kate Moss, en þetta er þriðja skiptið hennar á listanum. Einnig eru nöfn eins og George Clooney, Jude Law, Jemima Khan og Oprah Winfrey á listanum.

Fótboltastjörnunni David Beckham var hins vegar sparkað út af listanum mörgum til mikillar furðu þar sem hann hefur yfirleitt verið talinn ansi flottur í tauinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.