Gestirnir grétu af gleði 11. febrúar 2005 00:01
Anna Sigríður bjó á Ítalíu um fjögurra ára skeið og tók með sér í farteskinu strauma úr ítalskri matargerð þegar hún flutti heim aftur. Hún segist þó ekki vera mjög framsækin í eldamennskunni og lítið hafa þurft að elda sjálf í gegnum árin. "Ég hef aldrei búið ein og alltaf búið með svo góðum kokkum. Það hefur bara æxlast þannig," segir Anna Sigríður. "Ég var til dæmis gift ítölskum manni sem er miklu betri kokkur en ég og nú bý ég með manni sem er algjör sérfræðingur í ákveðnum réttum. Við vorum til dæmis með fólk í mat um helgina sem fékk bókstaflega tár í augun, svo góður var hryggurinn sem hann eldaði. Það er einhver galdur þarna sem er engu líkur." Anna Sigríður segir að helst sé eldað á hennar heimili á virkum dögum þar sem hún vinnur óreglulegan vinnutíma og mest um helgar. "Ivar sér um alla matseld á fiski en ef við erum með hakk- eða pastaétti þá elda ég." Sigríður er með uppskrift að einföldum pastarétti með tómötum og basil og léttu salati með. "Þetta er einmitt matur sem hentar eftir bollu- og sprengidaginn, að ekki sé talað um allan þorramatinn." Sigríður er tónlistarstjóri Fríkirkjunnar, í hálfu starfi á móti Carli Möller, og er nú í önnum með kórnum sem ætlar að vera með tónleika næstkomandi fimmtudag í tilefni Vetrarhátíðar Reykjavíkurborgar. "Þarna verða Helena Eyjólfsdóttir, Þorvaldur Halldórsson og Ragnar Bjarnason og svo rek ég nú hugsanlega upp einhverjar rokur sjálf," segir Anna Sigríður hlæjandi. "Svo spilar að sjálfsögðu tríó Carls Möllers. Þetta er óskaplega spennandi og skemmtileg efnisskrá."
Matur Mest lesið Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir Lífið Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Menning Langdregnir brandarar stoppa ekki stuðið Gagnrýni „Aldrei of seint að gera hlutina“ Lífið Anthony Head er látinn Lífið James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Bíó og sjónvarp Topptjöldum fylgir nýtt frelsi á ferðalögum Lífið samstarf Bylgjulestin leggur af stað inn í sumarið Lífið samstarf Marjane Satrapi er látin „úr sorg“ Menning Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið