Heimsátak gegn ofbeldi á konum 26. nóvember 2005 06:00 Í gær hófst átak á heimsvísu gegn ofbeldi gagnvart konum , einkum þó í þróunarlöndum. Hér á landi eru það UNIFEM á Íslandi og Kvennathvarfið sem hafa forgöngu um verkefnið, en mörg önnur samtök koma líka að því. Í ár er yfirskrift átaksins: Heilsa kvenna, heilsa mannkyns: Stöðvum ofbeldið. Það er ekki ofsagt að víða um heim viðgengst enn þann dag í dag ótrúlegt ofbeldi gagnvart konum, sem oftar en ekki á sér rætur í siðum eða trúarbrögðum viðkomandi lands og sem við Vesturlandabúa eigum erfitt með að skilja til fulls. Það er ekki þar með sagt að í vestrænum ríkjum eigi sér ekki líka stað ofbeldi gagnvart konum, en það er kannski með öðrum hætti . Við þurfum Íslendingar reyndar ekki að leita langt til að hafa verið upplýstir um óafsakanlegt ofbeldi, því í vikunni féll þungur dómur yfir manni sem hafði gengið þannig að fyrrverandi sambýliskonu sinni að heppni ein er talin hafa orðið til þess að hún lést ekki. Í nýrri skýrslu Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar er greint frá heimilisofbeldi í tíu löndum, sem öll eru utan Vestur-Evrópu og Norður-Ameríku. Sem dæmi úr þeirri skýrslu er, að í Eþíópíu er sjö af hverjum tíu konum þar í landi misþyrmt á heimilum sínum og í Japan segja fimmtán prósent kvenna sem spurðar voru að þeim hefði verið misþyrmt á heimilunum. Samskonar fyrri rannsóknir sýna að um fimmtungi kvenna í Svíþjóð , Bandaríkjunum , Bretlandi og Kanada hefur verið misþyrmt á heimilum sínum. Sú ályktun sem einn skýrsluhöfunda dró af þessum niðurstöðum er, að konur séu í meiri hættu heima hjá sér en úti á götu, eins og skýrt var frá hér í Fréttablaðinu í gær. Þetta eru ógnvænlegar upplýsingar, sem á einhvern hátt verður að bregðast við. Í sumum löndum telja konur að misþyrmingar séu eðlilegur þáttur lífsins, og þarf að verða mikil viðhorfsbreyting til að sigrast á gömlum fordómum og uppræta atferli sem hefur verið landlægt í aldanna rás. Þar er mikið og stórt verkefni fyrir höndum hjá samtökum eins og UNIFEM og fleirum. Á Vesturlöndum snýr málið öðru vísi við, og þarf þarf að viðhafa aðrar aðferðir til að koma í veg fyrir ofbeldi gagnvart konum. Oft er það svo að sambúðarslit verða þess valdandi að fyrrverandi eiginmenn eða sambýlismenn ofsækja fyrrverandi konur sínar. Þar hafa margvíslegar aðferðir verið reyndar,en oft er það svo að sjaldan veldur einn þá tveir deila. Nálgunarbann hefur stundum borið árangur, en þegar börn eru í spilinu getur verið erfitt að framfylgja því. Það sem er heillavænlegast í þesum efnum er að greina hvert atvik fyrir sig, því svo virðist sem engin ein lausn gildi fyrir alla. Þá hlýtur að koma til álita að hjálpa þeim mönnum sem uppvísir verða að ofbeldi gagnvart fyrrum konum sínum, veita þeim félagslega og sálfræðilega aðstoð til að freista þess að koma í veg fyrir áframhaldandi ofbeldi, auk þes sem þeir verða að taka út refsingu samkvæmt lögum og úrskurði dómstóla. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Kári Jónasson Skoðanir Mest lesið Af hverju umræðan um Eurovision, Ísrael og jólin hrynur þegar raunveruleikinn bankar upp á Hilmar Kristinsson Skoðun Frá sr. Friðriki til Eurovision: Sama woke-frásagnarvélin, sama niðurrifsverkefni gegn gyðing-kristnum rótum Vesturlanda Hilmar Kristinsson Skoðun Djöfulsins, helvítis, andskotans pakk Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Skoðun Vanhugsuð kílómetragjöld og vantalin skattahækkun á árinu 2026 Vilhjálmur Hilmarsson Skoðun Þeir sem hafa verulega hagsmuni af því að segja ykkur ósatt Þórður Snær Júlíusson Skoðun Samherjarnir Ingi Freyr og Georg Helgi Páll Steingrímsson Skoðun Minna stress meiri ró! Magnús Jóhann Hjartarson Skoðun Vindmyllur Þórðar Snæs Stefanía Kolbrún Ásbjörnsdóttir Skoðun Hvernig varð staðan svona í Hafnarfirði? Einar Geir Þorsteinsson Skoðun Eyðilegging Kvikmyndasafns Íslands Sigurjón Baldur Hafsteinsson Skoðun
Af hverju umræðan um Eurovision, Ísrael og jólin hrynur þegar raunveruleikinn bankar upp á Hilmar Kristinsson Skoðun
Frá sr. Friðriki til Eurovision: Sama woke-frásagnarvélin, sama niðurrifsverkefni gegn gyðing-kristnum rótum Vesturlanda Hilmar Kristinsson Skoðun
Af hverju umræðan um Eurovision, Ísrael og jólin hrynur þegar raunveruleikinn bankar upp á Hilmar Kristinsson Skoðun
Frá sr. Friðriki til Eurovision: Sama woke-frásagnarvélin, sama niðurrifsverkefni gegn gyðing-kristnum rótum Vesturlanda Hilmar Kristinsson Skoðun