Fylgdarþjónusta Handlagins 11. október 2004 00:01 "
Fylgdarþjónustan er hugsuð fyrir þá sem standa í íbúðarkaupum og vilja fá hlutlausan fagmann með sér til að meta fasteignina áður en kauptilboð er gert," segja Ýmir Björgvin Arthúrsson og Sæmundur H. Sæmundsson, eigendur fyrirtækisins Handlaginn sem sérhæfir sig í þjónustu og ráðgjöf fyrir fasteignaeigendur. "Þetta er ein stærsta fjárfesting flestra og er mikilvægt að fólk kaupi ekki köttinn í sekknum," segja þeir Ýmir og Sæmundur. "Fylgdarsveinar Handlagins, sem allir eru sérfræðingar með mikla reynslu og þekkingu, koma með fólki að skoða þá íbúð sem það hefur hug á að kaupa, þeir spyrja réttu spurninganna og meta ástand íbúðarinnar. Auk þess gefa þeir góð ráð varðandi samningagerðina og aðstoða fólk við að meta hvaða verð er sanngjarnt fyrir eignina," segja Ýmir og Sæmundur og bæta því við að einnig geti þeir lagt mat á hugsanlegan kostnað ef til viðgerða eða breytinga á fasteigninni kemur. "Hver skoðun er skráð og ef til einhverra eftirmála kemur þá er allt á skrá hjá okkur." Segja má að þjónusta Handlagins snúist að miklu leyti um að allir komi fram með hreint borð þegar að kaupunum kemur. "Við bjóðum einnig þeim sem hafa hug á að selja upp á ástandsskoðun þar sem sérfræðingur vinnur ítarlega skýrslu um ástand íbúðar og hægt er að leggja hana fram þegar til sölu kemur," segja þeir Ýmir og Sæmundur. "Við viljum vekja athygli á að þetta kemur öllum til góða og ekki síst fasteignasalanum. Við höfum nú þegar náð góðu samstarfi við fasteignasala og fengið jákvæð viðbrögð þar sem þetta fyrirbyggir vandamál og eftirmála fyrir alla aðila," segja þeir Ýmir og Sæmundur.
Hús og heimili Mest lesið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Prótein á að vera í forgangi Lífið samstarf Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Lífið samstarf Jólabylgjan komin í loftið Jól Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Miðbær Nashville kemur til Reykjavíkur og Akureyrar Lífið samstarf Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Fleiri fréttir Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Sjá meira