Teiknað af Kjartani Sveinssyni 19. júlí 2004 00:01
Fasteignasalan Fasteignamiðlun er nú með í sölu glæsilegt 236,7 fermetra einbýlishús að Bollagörðum 2 á Seltjarnarnesi á einni hæð ásamt 23,20 fermetra sólskála auk 59,30 fermetra tvöfalds, innbyggðs bílskúrs. Samtals er húsið sem sagt 319,20 fermetrar. Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni og stendur á hornlóð við Lindarbraut. Öll lóðin er afgirt og miklir sólpallar eru á lóðinni sem er öll hin glæsilegasta. Íbúðin skiptist í rúmgott anddyri með vönduðum skápum. Inn af anddyri er rúmgott svefnherbergi án skápa, gluggalaust flísalagt baðherbergi í hólf og gólf. Baðherbergið er með sturtuklefa og innréttingu. Úr anddyri er komið inn í mjög rúmgott sjónvarpshol með þakglugga og mikilli lofthæð. Af sjónvarpsholi er gengið inn í rúmgott eldhús með vandaðri fulningainnréttingu frá JP og góðum borðkrók. Inn af eldhúsi er þvottaherbergi með innréttingu, glugga og útgangi út á lóð. Inn af þvottaherbergi er búr með hillum og glugga. Af eldhúsi er gengið inn í mjög rúmgóða borðstofu og dagstofu með arni. Inn af dagstofu er rúmgóður sólskáli með arni sem einnig er hægt að nota sem grill. Úr sólskála er gengið út á rúmgóðan og afgirtan sólpall. Af sjónvarpsholi er einnig gengið inn í dagstofu og svefnherbergisgang sem er með útgangi út á afgirtan sólpall. Af þessum gangi er gengið inn í hjónaherbergi með fataherbergi inn af. Einnig er gengið inn í tvö svefnherbergi með skápum og flísalagt baðherbergi í hólf og gólf. Baðherbergið er með innréttingu, nuddhornbaðkari, sturtuklefa og glugga. Bílskúrinn er tvöfaldur og skráður 59,30 fermetrar. Bílskúrinn er sjálfur 42,20 fermetrar en inn af honum er 6,1 fermetra geymsla og 5,5 fermetra flísalögð baðaðstaða með sturtu. Inn af þessari aðstöðu er 5,5 fermetra saunaklefi með útgangi út á afgirtan sólpall. Náttúrusteinn er á anddyri, sjónvarpsholi og sólskála. Beykiparkett er á dagstofu, borðstofu, eldhúsi, öllum svefnherbergjum og svefnherbergisgangi. Hefðbundnar flísar eru á öllum baðherbergjum, þvottaherbergi og búri. Tengi er fyrir sjónvarpi í öllum svefnherbergjum og innréttingar, skápar og innihurðir er allt mjög vandað og frá JP. Ásett verð er 59 milljónir.
Hús og heimili Mest lesið Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Lífið David Hockney er látinn Menning Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Bíó og sjónvarp Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Fleiri fréttir Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Sjá meira