Veiði

102 sm hængur úr Vatnsdalsá
Nú er haustið að detta inn og ákveðinn ró að færast yfir laxveiðina en það skyldi þó engin halda að það sé ekki gaman að vera á bakkanum þessa dagana.

Lifnar yfir Ásgarði í Soginu
Það hafa ekki borist margar fréttir af Soginu í sumar þrátt fyrir að þangað sé alltaf nokkur straumur veiðimanna.

Sjóbirtingsveiðin fer vel af stað
Það styttist í að fyrstu árnar í laxveiðinni loki en þó að laxveiðin sé að róast eru góðar fréttir af sjóbirting fyrir austann.

Treg taka en nóg af laxi
Það er óhætt að segja að það hafi verið mikil ró yfir aflabrögðum í laxveiðiánum í Borgarfirði en takan hefur verið með allra rólegasta móti.

Veiði lokið í Veiðivötnum
Veiðitímabilinu er formlega lokið í Veiðivötnum og veiðin á þessu ári er nokkurn veginn á pari miðað við árið í fyrra.

11 kílóa urriði úr Þingvallavatni
Þingvallavatn hefur verið að gefa mjög góða bleikjuveiði í sumar en þó svo það sé að líða að lokum veiðitímans í vatninu er langt frá því að vera lítil veiðivon.

Eystri Rangá komin yfir 3.000 laxa
Nýjar veiðitölur frá Landssambandi Veiðifélaga sýna að það hefur hægst á veiðinni um allt land nema þá í Eystri Rangá en þar er allt ennþá á fullu flugi.

Eldvatnsbotnar að detta inn
Sjóbirtingurinn er mættur í Eldvatnsbotnana, en það er lítið og skemmtilegt tveggja stanga sjóbirtingsvæði í Skaftafellssýslu þar sem oft er von á góðri veiði.

Gæsaveiðin fer vel af stað
Gæsaveiðitímabilið hófst í gær og af fyrstu fregnum að dæma gengur skyttum landsins vel á þessum fyrsta degi.

Eitt gott ráð fyrir síðsumars laxveiði
Það er lengi hægt að gefa góð ráð í laxveiði og fer ráðgjöfin oft eftir því hvaða á er verið að veiða og hvernig vatnið er í ánni.

Af dyntóttum bleikjum í Hraunsfirði
Sjóbleikjuveiðin hefur verið góð á flestum svæðum sem við höfum verið að fá fregnir frá en eitt af þeim mest sóttu er Hraunsfjörður.


Tími sjóbirtingsins að renna upp
Laxveiðitímabilið er komið á seinni hlutann og framundan er tímabil sem oft er spennandi því hausthængarnir fara að hreyfa sig en svo er líka besti tíminn fyrir sjóbirtinginn framundan.

Eystri Rangá aflahæst laxveiðiánna
Nýjar tölur voru birtar um aflabrögð laxveiðiánna í gærkvöldi og Það er greinilega komin haustbragur í nokkrar árnar.

Veiðimyndakeppni flugunnar Zeldu í gangi
Flugan Zelda var lengi eitt best geymda veiðileyndarmál höfundar flugunnar en hún þykir ansi veiðin við hinar fjölbreyttustu aðstæður.

54 laxa holl í Affallinu
Heimtur á laxi í Affallið hafa verið með eindæmum góðar og veiðin þar síðustu daga hefur verið einstaklega góð.

Laugardalsá til SVFR
Veiðifélag Laugardalsár í Ísafjarðardjúpi og Stangaveiðifélag Reykjavíkur hafa samið um leigu á Laugardalsá í fjögur ár, frá og með næsta sumri.

Veiðimenn á vesturlandi biðja um rigningu
Þetta sumar hefur einkennst af miklum öfgum í vatni og eftir þrálátar rigningar sem settu árnar á flot er nú beðið um rigningu.

Gæsaveiðin hefst 20. ágúst
Gæsaveiði nýtur mikilla vinsælda á landinu og fer mikill fjöldi veiðimanna á veiðar á hverju ári til að veiða bæði grágæs og heiðagæs.

Laxárdalurinn búinn að vera góður í sumar
Laxárdalurinn í Laxá í Þingeyjarsýslu hefur verið að koma sterkur inn í sumar og það er mikið af stórum fiski á svæðinu.

1,000 löxum undir veiðinni í fyrra en veiðin samt góð
Rangárnar báðar eru að skila mjög góðum veiðitölum þessa dagana en Ytri Rangá hefur aðeins verið á eftir Eystri ánni.

Vikuveiði upp á 635 laxa
Eystri Rangá er á flugi þetta sumarið eftir rólegt sumar í fyrra en tölurnar sem við erum að sjá úr vikuveiðinni eru ævintýralegar.

Makrílinn mættur við bryggjur landsins
Veiði þarf ekki bara að snúast um lax eða silung og bryggjur landsins hafa í gegnum tíðina verið fín uppvaxtarstöð fyrir framtíðar veiðimenn.

Tvær laxveiðiár komnar yfir 2.000 laxa
Landssamband Veiðifélaga uppfærði listann yfir aflatölur laxveiðiánna í gærkvöldi og þar sést að sumar árnar eru að eiga mjög gott sumar.

Vikuveiðin í Veiðivötnum 1.906 fiskar
Nú eru tölur komnar fyrir viku sjö í Veiðivötnum og þar sést að heildarveiðin fyrir liðna viku var 1.906 fiskar sem er alveg prýðilegt.

Stórbleikja úr Eyjafjarðará
Veiðin í Eyjafjarðará er að komast vel í gang enda er þetta tíminn þegar stærstu sjóbleikjugöngurnar eru að mæta í árnar.

Elliðaárnar alveg líklegar að fara yfir veiðitölu 2017
Veiðin í Elliðaánum hefur verið mjög góð í sumar og hafa gngur í ána verið í takt við það sem er að gerast í ánum á vesturlandi.

Þverá og Affalið að gefa fína veiði
Veiðin í Affalinu og Þverá í Fljótshlíð hefur tekið mikin kipp enda hafa göngur í þessar tvær litlu veiðiár verið mjög góðar síðustu daga.

147 laxar á einum degi
Eystri Rangá er greinilega að fá sterkar göngur inn þessa dagana enda bera veiðitölurnar úr henni þess greinilega merki.

Þrjár ár að detta í 1.000 laxa
Laxveiðin á vesturlandi og í Rangánum hefur haldið sumrinu uppi á meðan veiðin fyrir norðan er heldur dræm.