Tónlist

Fréttamynd

Hollt að sinna hús­verkum og fá engin hrós

„Ég upplifi stundum að ég sé að reyna að halda á tímanum en hann lekur bara úr höndunum á mér,“ segir tónlistarmaðurinn Gauti Þeyr, betur þekktur sem Emmsjé Gauti. Síðastliðin tíu ár hefur hann verið gríðarlega vinsæll hérlendis og troðið upp á hinum ýmsu skemmtunum. Hann stendur á tímamótum og ræddi við blaðamann um þau, lífið og listina.

Tónlist

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Opna Laufeyjarverslun fyrir tón­leikana

Á þriðjudaginn mun Sena opna sérstaka Laufeyjarverslun í Smáralindinni í tilefni af stórtónleikum Laufeyjar í Kórnum 14. og 15. mars. Þar verður boðið upp á lifandi tónlist, gjafaleiki og Laufeyjarvarning vikuna fyrir tónleikana.

Tónlist
Fréttamynd

„Þú ert stærsta súperstjarnan á plánetunni jörð“

Hollywood-leikarinn Jeff Goldblum var óvæntur gestur á tónleikum Laufeyjar Línar í Manchester í gærkvöldi. Laufey söng djazzklassíkina „Misty“ meðan Goldblum spilaði undir og að því loknu lýsti Goldblum henni sem stærstu súperstjörnu jarðarinnar.

Tónlist
Fréttamynd

Úr barnaskemmtunum á klúbbinn

Tónlistarkonan Anna Bíbi ákvað að gera „klúbbaremix“ af Latabæjarslagaranum „Bing Bang“ og fékk með sér Unni Eggertsdóttur, sem lék Sollu stirðu um árabil. Unnur söng lagið mörg hundruð sinnum á barnaskemmtunum á sínum tíma og segir að nú sé komið að klúbbnum.

Tónlist
Fréttamynd

Í fyrsta sinn á föstu á Valentínusar­daginn 52 ára

„Ég rankaði við mér fyrsta árið okkar saman og áttaði mig á því að ég hafði aldrei áður verið á föstu á Valentínusardaginn,“ segir popp-prinsinn Páll Óskar sem ætlar að eiga rómantískan dag á laugardag með hans heittelskaða Antonio en fyrst kemur hann fram á tónleikunum Allskonar ást í Laugarneskirkju.

Tónlist
Fréttamynd

Sjóðandi hiti hjá stjörnum rappsins

Rappsenan tók yfir Gamla Bíó á dögunum þegar rapparinn Izleifur blés til alls herjar tónlistarveislu í tilefni af plötuútgáfu. Frítt var inn og ásamt Izleifi kom þotulið tónlistarfólks fram.

Tónlist
Fréttamynd

„Ég er að heiðra litla Aron“

„Ég var klárlega búinn að fá einhver merki um að ég þyrfti aðeins að hægja á mér. Þessi pása lét mig einfaldlega elska þetta meira og ég saknaði tónlistarinnar,“ segir tónlistarmaðurinn og stjarnan Aron Can. 

Tónlist
Fréttamynd

„Hún er komin til að vera“

Doktor í tónlistafræðum og gangrýnandi telur alveg ljóst að Laufey Lín sé ekki „einhver einsmellungur“ eftir að íslenska söngkonan hlaut í gær sín önnur Grammy-verðlaun. Það hafi verið frábært af hennar hálfu að lofa listnám sitt í þakkarræðunni.

Tónlist
Fréttamynd

Byrjaði allt í blokkinni í Breið­holti

Steindór Gestur Guðmundarson, einnig þekktur sem Sdóri, og Helgi Albert Reinharðsson eða Helgi A hafa skapað tónlist saman í rúman áratug en þeir hófu tónlistarferil sinn í rappgrúbbunni Landaboi$. Þeir bjuggu í sömu blokk sem unglingar og hafa allar götur síðan verið óaðskiljanlegir en þetta tvíeyki var að senda frá sér lag og brakandi ferskt tónlistarmyndband.

Tónlist
Fréttamynd

Stjórinn mót­mælir ICE með lagi um Minneapolis

Tónlistarmaðurinn Bruce Springsteen, betur þekktur sem Stjórinn, hefur gefið út lagið „Streets of Minneapolis“ þar sem hann heiðrar minningu Alex Pretti og Renee Good sem létust í aðgerðum ICE í Minneapolis og mótmælir stjórn Donalds Trump. 

Tónlist
Fréttamynd

Ís­lenskur tón­listar­maður í lykil­hlut­verki

Samstarf sem hófst í Reykjavík varð kveikjan að endurkomu einnar þekktustu jaðarrokkhljómsveitar Bretlands, Arcane Roots. Þar er íslenski tónlistarmaðurinn Bjarni Biering í lykilhlutverki en blaðamaður tók púlsinn á honum og hljómsveitinni.

Tónlist
Fréttamynd

Högni hjálpar fólki að slaka á

Tónlistarmaðurinn ástsæli Högni Egilsson var að senda frá sér nýtt hljóðverk í samvinnu við Laugar spa þar sem hann rannsakaði slökun og vellíðan í þaular. Verkið á að ýta undir vellíðan gesta.

Tónlist
Fréttamynd

Hætta ó­vænt við tónleikaferðalög sín

Iðnaðarteknósveitin Hatari hefur hætt við tónleikaferðalag sitt um Evrópu í febrúar án nokkurrar skýringar. Í síðustu viku hætti rokkhljómsveitin The Vintage Caravan við tónleikaferðalag sitt vegna andlegrar þreytu.

Tónlist
Fréttamynd

„Þetta er ekki upp­gjör á mínu upp­eldi“

Rapparinn og pródúsentinn Ízleifur gefur út sína þriðju plötu, 100&Einn, undir mánaðarlok. Platan er hans lengsta til þessa, innblásin af uppeldishverfinu 101 og tekst Ízleifur á við ýmsar erfiðar tilfinningar á henni.

Tónlist
Fréttamynd

Skilur meðvirkni eftir í for­tíðinni

„Satt best að segja finnst mér hvert ár bara alltaf verða betra og betra,“ segir tónlistarkonan Guðrún Ýr Eyfjörð, jafnan þekkt sem GDRN, en hún fagnaði þrítugsafmæli um helgina en ætlar að fagna áfanganum betur þegar hún klárar meðgönguna. Sömuleiðis var hún að gefa út plötu og heldur sér alltaf á tánum.

Tónlist
Fréttamynd

Rugluðust á Lauf­eyju og „Megan“

Kurteisisleg viðbrögð Laufeyjar Línar Jónsdóttur við því þegar ljósmyndarar kölluðu hana „Megan“ á rauða dreglinum fyrir Golden Globe verðlaunahátíðina hefur vakið athygli erlendra miðla.

Tónlist
Fréttamynd

Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir and­lát hans

Lagið „Reykjavík“ eftir Halla Reynis kom út í dag, rúmum sex árum frá andláti tónlistarmannsins. Sonur Halla fann lagið á gömlum geisladiski eftir andlát föður síns 2019 og fannst það of gott til að liggja ósnert. Lagið súmmeri upp það sem gerði Halla að góðum tónlistarmanni og sé einföld en djúp frásagnarlist við gítarspil.

Tónlist
Fréttamynd

Vin­sælustu lögin á Bylgjunni 2025

Tónlistin er gríðarlega mikilvægur hluti af íslensku menningarlífi og síðastliðið ár var mjög gjöfult í íslenskri tónlistarsenu, hvað varðar bæði útgáfu og tónleikahald. 

Tónlist
Fréttamynd

Heitustu lögin á FM árið 2025

Liðið ár var viðburðaríkt í tónlistarsenunni hérlendis og erlendis og má segja að rappið hafi svolítið tekið yfir í gróskumikilli útgáfu á Íslandi. Útvarpsstöðin FM957 afhjúpar hér hvaða hittarar standa efst á árinu sem er senn að líða og íslenskt tónlistarfólk heldur áfram að taka yfir efstu sætin.

Tónlist