Leikjavísir

Sandkassinn tekur á því í Apex
Strákarnir í Sandkassanum ætla að taka á því í Apex Legendds í kvöld. Þá ætla þeir mögulega einnig að kíkja smá á Trine.

Gameveran tekur á móti Shady Love
Marín Eydal eða Gameveran mun fá Shady Love eða Hilmar í heimsókn til sín í streymi kvöldsins. Saman ætla þau að berjast fyrir lífum sínum í Dead by Daylight.

Babe Patrol fær liðsauka
Stelpurnar í Babe Patrol fá liðsauka á Caldera í kvöld. Þá verður hann Óli Jóels á ferðinni í Warzone og stefna þau á sigra.

Drottningar í skógarferð
Hún Móna í Queens fær í kvöld til sín hana Marín, eða Gameveruna. Saman ætla þær að spila leikinn Forest, sem snýst um að lifa af á dularfullri og mjög svo hættulegri eyju.

GTA V í PS5: Enn ein útgáfan og sú besta, aftur
Grand Theft Auto 5 er kominn út í enn einni útgáfunni. Leikurinn kom fyrst út fyrir tæpum áratug en lifir enn góðu lífi og það er ástæða fyrir því að leikurinn er eins vinsæll og raunin er. Hann er einfaldlega góður, þó hann sé farinn að láta á sjá.

Mánudagsstreymið: Skoða Fortnite án bygginga
Ekki er lengur hægt að byggja byggingar í Fortnite og það lýst andstæðingum strákanna í GameTíví ekki á. Nú geta þeir ekki lengur byggt sér skjól undan skothríð strákanna.

Tiny Tina's Wonderlands í Sandkassanum
Strákarnir í Sandkassanum munu í kvöld kíkja á nýja leikinn Tiny Tina's Wonderlands. Þar er um að ræða nýjan fjölspilunar-skotleik sem er nokkurskonar hliðarleikur Borderlands-seríunnar og framhald leiksins Tiny Tina's Assault on Dragon Keep.

Nýr þáttur hjá GameTíví hefur göngu sína
Nýr þáttur á vegum GameTíví hefst í kvöld. Það er þátturinn Gameveran þar sem Marín Eydal spilar tölvuleiki með félögum sínum.

Harðir bardagar á Caldera í kvöld
Stelpurnar í Babe Patrol ætla að herja á aðra spilara í Warzone í kvöld. Þar munu þær reyna að standa síðastar eftir á eyjunni Caldera.

Kalt kvöld hjá Queens
Það verður kalt hjá stelpunum í Queens í streymi kvöldsins. Þær munu reyna að lifa af í leiknum Wild Eight.

Babe Patrol: Fallhlífar og fermingarmyndir
Stelpurnar í Babe Patrol ætla sér stóra hluti í Warzone í kvöld. Þær stefna á þrjá sigra og ætla einnig að sýna fermingarmyndir í kvöld.

Queens spila Portal og Warzone
Þær Móna og Valgerður í Queens ætla að skella sér til Caldera í Warzone í streymi kvöldsins. Þá ætla þær einnig að spila hinn klassíska leik Portal 2.

GameTíví: Golf, fermingarmyndir og nýr fréttapakki
Það verður margt um að vera hjá GameTíví í kvöld. Strákarnir ætla meðal annars að spila leikinn Golf It og sýna fermingarmyndir sínar.

Óðar geimverur í Sandkassanum
Strákarnir í Sandkassanum ætla að snúa bökum saman í leiknum Risk of rain í kvöld. Í honum þurfa þeir að takast á við hjarðir óðra geimvera.

Babe Patrol halda sigurgöngunni áfram
Stelpurnar í Babe Patrol ætla að halda sigurgöngunni frá því í síðustu viku áfram í kvöld. Baráttan á Caldera í Warzone heldur áfram.

Elden Ring: Líklega minnst óþolandi leikur From Software, sem er gott
Elden Ring, nýjasti leikur From Software, er nokkuð merkilegur. Þetta er fyrsti leikur fyrirtækisins sem gerist í opnum heimi. From Software tekst að halda anda SoulsBorne-leikjanna og í senn gera leikinn aðgengilegri.

Þriðja drottningin mætir í Apex
Þær Móna og Valla í Queens fá þriðju drottninguna í heimsókn til sín í kvöld. Mjamix, eða Marín Eydal, mun spila Apex Legends með stelpunum í streymi kvöldsins.

GameTíví: Trúðalestin, Counter-Strike og Formúla
Strákarnir í GameTíví fá í kvöld meðlimi rafíþróttaliðsins Trúðalestarinnar í heimsókn í kvöld. Þá munu þeir spila Counter-Strike og F1 2022.

Co-op stuð í Sandkassanum
Strákarnir í Sandkassanum ætla að henda í sannkallaða Co-op veislu í kvöld. Dýravinir munu eflaust hafa sérstaklega gaman af streymi kvöldsins því það verður mikið um hesta, hænur og önnur dýr.

Babe Patrol: Berjast á Caldera og í eldhúsinu
Stelpurnar í Babe Patrol munu berjast hart í kvöld og það á tveimur vígvöllum. Auk þess að berjast á Caldera í Warzone munu þær keppast í eldhúsleiknum Overcooked 2 í streymi kvöldsins.

Queens kíkja aftur á hryllingsleikinn House of Ashes
Móna í Queens fær aftur hana Gud4Eva í heimsókn til sín í kvöld og ætla þær að kíkja aftur í hryllinginni. Saman munu þær halda áfram að spila leikinn House of Ashes.

Stuðkokteill hjá GameTíví
Strákarnir í GameTíví ætla að bjóða uppá sannkallaðan stuðkokteil i streymi kvöldsins. Þá munu þeir spila nokkra leiki en inn á milli halda þeir spurningakeppnir og skoða memes.

Babe Patrol: Nú skal fyrsti sigurinn nást
Stelpurnar í Babe Patrol lofa sínum fyrsta sigri í Warzone í streymi kvöldsins. Þær munu verja streyminu þungvopnaðar á Caldera.

Drottningar í Grænu helvíti
Stelpurnar í Queens ætla að taka á því í kvöld og reyna að lifa af við gífurlega erfiðar aðstæður. Það ætla þær að gera í leiknum Green Hell, þar sem þær verða strandaglópar í frumskógi.

GameTíví: Kíkja aftur til Caldera
Strákarnir í GameTíví ætla að kíkja aftur til Calder í kvöld eftir nokkra fjarveru frá Warzone. Að þessu sinni stefna þeir á fjóra sigra.

Kíkja í dótakassa Sandkassans
Strákarnir í Sandkassanum ætla að kíkja í dótakassann þeirra fyrir streymi kvöldsins. Þá munu þeir spila margskonar 2D samspilunarleiki.

Horizon Forbidden West: Í meistaraflokki opinna heima
Horizon Forbidden West gefur Horizon Zero Dawn, forvera sínum, lítið eftir að mestu leyti. Vélmennarisaeðlur eru enn skemmtilegir óvinir, persónurnar vel talsettar og áhugaverðar og leikurinn lítur fáránlega vel út. Sagan hefur þó ekki fangað mig eins og HZD, þó hún sé áhugaverð.

Babe Patrol kíkir á season tvö í Warzone
Stelpurnar í Babe Patrol ætla að kíkja á season 2 í Warzone í kvöld. Þar fá þær tækifæri til að skoða ný vopn og mögulega næla sér í þeirra fyrsta sigur.

Gesta- og draugagangur hjá Queens
Móna í Queens fær hana Gud6eva í heimsókn til sín í kvöld. Saman munu þær reyna á taugarnar og spila hryllingsleikinn House of Ashes.

Dying Light 2: Enn gaman að sparka dusilmennum og uppvakningum fram af húsþökum
Dying Light 2 Stay Human er hinn fínasti framhaldsleikur sem bætir að mörgu leyti á grunni forvera síns. Það er enn ógeðslega gaman að sparka uppvakningum og vondum körlum af húsþökum.