Fastir pennar

Við erum heppin
Kosningar eru fyrirferðarmiklar þessa dagana. Ekki bara eru tvær vikur í að gengið verði til alþingiskosninga hér á Íslandi, heldur fylgist heimsbyggðin agndofa með baráttu frambjóðenda Demókrata og Repúblikana fyrir forsetakosningar sem fram fara þann 8. nóvember.

Loðnubrestur á besta tíma
Eitt sinn hringdi íslenskur námsmaður heim þar sem hann hafði nýhafið framhaldsnám í Svíþjóð.

Sulta. Árgerð 2016
Æi, til hvers er maður að eyða tíma í matargerð? Þukla á ávöxtum í stórmarkaði til að finna réttan þroska. Ekki of lina lárperu. Ekki of harða. Passlega gulnaðan banana. Brauð bakað að morgni dags. Ferskar kryddjurtir. Ekkert þurrkað rusl. Rétti osturinn, rétt meðhöndlaða kjötið, súkkulaði með 65% kakómassa.

Þing gegn þjóð
Hörð rimma var háð um stjórnarskrána sem Alþingi bar undir þjóðaratkvæði 1944. Stjórnarskráin frá 1944 er stundum kölluð lýðveldisstjórnarskrá. Það er þó rangnefni þar eð textinn var í reyndinni ekki annað en bráðabirgðaskjal með lágmarksbreytingum á gömlu stjórnarskránni frá 1874.

Berskjölduð
Ný álagspróf Seðlabankans sýna hversu berskjaldað og viðkvæmt hagkerfið er fyrir áföllum og hversu atvinnulífið er háð vexti ferðaþjónustunnar. Það undirstrikar mikilvægi vaxtar annarra atvinnugreina.

Loksins slaknar á höftunum
Alþingi samþykkti í gær frumvarp um gjaldeyrisviðskipti sem kynnt voru fyrir nokkru. Ný lög eru mikilvægt skref á þeirri vegferð að landið verði aftur þátttakandi í alþjóðlegu viðskiptaumhverfi. Með lögunum eru heimildir Íslendinga til að dreifa áhættu sinni út fyrir íslenska hagkerfið rýmkaðar verulega.

Beislum vindinn
Vinnsla rafmagns úr vindorku er einhver umhverfisvænsta aðferð sem þekkist til að búa til rafmagn. Verkefnisstjórn um rammaáætlun og löggjafinn ættu að veita vindorkuverkefnum brautargengi og stuðla þannig að því að gera samfélagið minna háð óafturkræfum virkjunum.

Í leit að friði
Friðarsúlan í Viðey var tendruð í gærkvöldi og geislar hennar brutu sér leið í gegnum rigningarsuddann í Reykjavík.

Hver skaut JFK? Formaður Framsóknar?
Miðvikudagurinn 17. september 2014. Edinborg. Igor Borisov og þrír rússneskir félagar hans mæta til skosku höfuðborgarinnar. Þeir eru komnir til að fylgjast með þjóðaratkvæðagreiðslunni um sjálfstæði Skotlands á vegum rússneskra stjórnvalda.

Breytingar breytinga vegna
Staðan á sviði stjórnmálanna er um margt fordæmalaus nú þegar styttist í kosningar. Fjöldi flokka er í framboði og stefnumálin misjafnlega skýr. Kannanir benda til að þingflokkarnir verði sjö og ekki verði mögulegt að mynda tveggja flokka stjórn eins og mörgum þykir eftirsóknarvert á Íslandi.

Menntun í aska framtíðarinnar
Menntunarstig þjóða ræður miklu um hagsæld þeirra. Hvert sem litið er má sjá að þeim þjóðum vegnar best til lengri tíma þar sem lögð er rækt við þekkingu og menntun.

Vitsmunaleg heilsurækt
Um miðjan áttunda áratuginn kom móðurbróðir minn í heimsókn til Vestmannaeyja og var yfir jólin. Þótt hann hafi ekki verið lengi

Kleyfhuga kjósendur?
Það sjónarmið hefur heyrzt í umræðum um stjórnarskrármálið að ekki beri ríka nauðsyn til að taka mark á kjósendum þar eð þeim sé tamt að skipta um skoðun. Þetta sjónarmið vitnar ekki um mikla virðingu fyrir lýðræði.

Sykurþjóðin
Íslendingar eru bæði langfeitasta þjóðin og mestu gosdrykkjaþambarar Norðurlandanna. Við erum svo miklir gossvelgir að við drekkum rúmlega þrisvar sinnum meira af sykruðu gosi á ári hverju en Finnar.

Mikilvægi lífeyrismála
Við fall fjármálakerfisins misstu lífeyrissjóðir mikla eignir og margir þeirra þurftu í kjölfarið að skerða réttindi félagsmanna sinna. Nú hillir undir að einhverjir sjóðanna geti á næstu árum hækkað réttindi. Þetta er að sjálfsögðu háð því að ávöxtun á mörkuðum næstu árin verði sæmileg.

Er hægt að réttlæta allt með hausareglunni?
Okkur Íslendingum er gjarnt að bera okkur saman við aðrar þjóðir. Oftast er sá samanburður okkur mjög í hag, alla vega þegar við önnumst hann sjálfir. Þegar á okkur hallar grípum við gjarnan til hausareglunnar, sem aldrei bregst.

Breytt ásýnd
Þegar rykið sest að loknu hádramatísku flokksþingi Framsóknarflokksins er eðlilegt að velta fyrir sér möguleikum flokksins með breyttri ásýnd.

Skammsýni
Við sem erum komin á miðjan aldur eða eldri munum þá tíma þegar refa- og minkabúskapur átti að koma íslenskum sveitum til bjargar.

Ekki gallalaus
Þegar þetta er skrifað á sunnudagsmorgni er ekki vitað um úrslit í formannskjöri í Framsóknarflokknum en af fregnum að dæma mun það tvísýnt. Við höfum hins vegar fylgst nokkuð langleit með framferði Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar,

Hraust Evrópa
Evrópusambandið á sér fáa málsvara sem brenna í skinninu. Að minnsta kosti heyrist lítið í þeim þótt stutt sé í kosningar.

Frelsið er yndislegt
Ég er nú ekki svo gamall. En samt man ég eftir ýmsu sem okkur finnst fáránlegt í dag. Svo fáránlegt að við erum jafnvel farin að hlæja að því og spyrjum okkur: Hvernig var þetta hægt?

Að borða eftir heimsálfum
Hver ert þú? Því er auðsvarað. Þú ert það sem þú borðar. Þú ert seríosið sem þú fékkst þér í morgun. Þú ert hafrarnir og mjólkin. Þú ert allur pakkinn. Þú ert vinna grafísku hönnuðanna sem settu skálina á gulan bakgrunninn.

Myntráð í tíma tekið
Framtíðarskipan gjaldmiðlamála hlýtur að vera eitt meginverkefni þeirra sem hafa hug á að leiða þjóðina til hagsældar til framtíðar. Hliðarafurðir gjaldmiðlaumræðunnar eru raunar áberandi í umræðu stjórnmálanna svo sem vaxtakjör og verðtrygging. Minna fer fyrir kjarnanum sjálfum.

Sárþjáð kerfi
Það er árangursrík aðferð til að svæfa mann hratt að ræða við hann um muninn á einkarekstri og einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu. Það er hins vegar mjög kynþokkafullt umræðuefni út frá mælikvörðum pólitískrar rökræðu.

Undir högg að sækja
Ef Bandaríkin ein eru undan skilin var hvergi nokkurs staðar í heiminum að finna lýðræði fyrr en um 1850 þegar byltingaralda reið yfir Evrópu og fæddi m.a. af sér Þjóðfundinn í Lærða skólanum 1851.

Ríkisábyrgð er ríkisframkvæmd
Göngin undir Vaðlaheiði eru vafalítið mikil samgöngubót fyrir þá sem búa í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum. Víkurskarð getur verið hvimleiður farartálmi að vetri og því má vel skilja ákafa heimamanna á svæðinu að bora göng undir heiðina.

Galopin staða
Styrkur Viðreisnar felst ekki síst í stöðu flokksins á miðju íslenskra stjórnmála. Það er engum vafa undirorpið að flokkurinn mun sækja fylgi til hægri og vinstri í alþingiskosningunum 29. október.

Umboðslaust mannhatur
Það er einhver búð í Englandi sem kallar sig Iceland og vill banna íslenskum stjórnvöldum að nota þetta "vörumerki“ í markaðssetningu á ferðalögum til landsins

Óvildarpólitík
Það þykir jafnan tíðindum sæta þegar Íslendingar eru sammála, en nánast án undantekninga snýst slík samheldni þjóðarinnar um eigið ágæti.

Apar á Alþingi
Hvað gerist ef við fyllum Alþingishúsið af öpum? (Nei, þetta er ekki samlíking). Veruleiki okkar mannanna er tvískiptur. Annars vegar samanstendur hann af hinu áþreifanlega, kaffibollanum í lúkunum á okkur, pappírnum í Fréttablaðinu fyrir framan okkur, stólsessunni undir afturendanum á okkur; hins vegar af sameiginlegum hugarburði mannkynsins.