
Formúla 1

Hefur hjálpað Haas með glæfralegum akstri
Kevin Magnussen hefur byrjað tímabilið í Formúlu 1 af gríðarlegum krafti. Ef til vill fullmiklum krafti ef marka má fréttir þess efnis að hann gæti verið á leið í keppnisbann vegna fjöldi refsistiga.

Fimm ára bið á enda hjá Norris
Fimm ára bið breska ökuþórsins Lando Norris eftir sigri í Formúlu 1 mótaröðinni lauk í gær er hann bar sigur úr býtum í Miami kappakstrinum. Sterkt svar frá Norris sem hafði fengið á baukinn frá gagnrýnendum.

Loksins landaði Lando sigri í Formúlu 1
Lando Norris vann í kvöld sinn fyrsta Formúlu 1 kappakstur. Hann kom fyrstur í mark á meðan ríkjandi heimsmeistarinn Max Verstappen var í öðru sæti og Charles Leclert var þriðji.

Vatnaskil hjá Red Bull og risafréttir fyrir Formúlu 1
Í gær bárust stórar fréttir úr heimi Formúlu 1. Adrian Newey, aðal hönnuðurinn að baki keppnisbílum Red Bull frá árinu 2006. Maðurinn sem er jafnan talinn vera heilinn að baki þeim þrettán heimsmeistaratitlum sem liðið hefur unnið síðan að hann gekk til liðs við það, er á förum í upphafi næsta árs.

Skilur af hverju fólk hættir að horfa á leiðinlega Formúlu 1
Lando Norris segist skilja ef fólk hættir að horfa á Formúlu 1 vegna yfirburða Max Verstappen.

Verstappen vann í Kína
Hollendingurinn Max Verstappen vann kínverska kappaksturinn í formúlu 1 í morgun og jók þar með forskot sitt í heimsmeistarakeppni ökumanna.

Verstappen átján sætum á undan Hamilton á ráspólnum á morgun
Heimsmeistarinn Max Verstappen verður enn á ný á ráspólnum í kínverska formúlu 1 kappakstrinum sem fer fram í fyrramálið.

Hamilton segir enn langt í það að hann hætti
Lewis Hamilton ætlar sér að keppa í formúlu 1 langt inn á fimmtugsaldurinn. Hann tekur Spánverjann Fernando Alonso sér til fyrirmyndar.

Verstappen aftur á sigurbraut eftir árekstur á fyrsta hring
Max Verstappen og Sergio Perez náðu sinni þriðju tvennu í fjórða kappakstri tímabilsins þegar þeir komu fyrstir í mark í Japanskappakstrinum í Formúlu 1.

Liðsfélagarnir fremstir eftir tímatökur í Japan
Max Verstappen verður á ráspól þegar Formúlu 1 keppnin í Japan fer fram í nótt. Kappaksturinn í nótt verður sýndur beint á Vodafone Sport.

Fjórfaldi heimsmeistarinn íhugar að hætta við að hætta
Sebastian Vettel, fjórfaldur heimsmeistari í Formúlu 1, segist hafa íhugað það að snúa aftur í íþróttina eftir að hafa lagt kappaksturinn á hilluna árið 2022.

Eigandi Formúlu 1 festir kaup á MotoGP
Liberty Media, bandaríska fjölmiðlasamsteypan sem á Formúlu 1, hefur gengið frá kaupum á mótorhjólakappakstrinum MotoGP.

Verstappen efstur á óskalista Mercedes: Ummæli Toto kynda undir sögusagnir
Þrefaldi heimsmeistari ökumanna, Hollendingurinn Max Verstappen, er fyrsti maður á lista hjá Mercedes yfir þá ökumenn sem liðið vill fá til liðs við sig til að fylla upp í skarð Lewis Hamilton á næsta tímabili. Ummæli Toto Wolff, framkvæmdastjóra Formúlu 1 liðs Mercedes um Verstappen hafa vakið mikla athygli og virkað sem olía á eld orðróma.

Verstappen óvænt úr leik eftir örfáar mínútur og Ferrari fagnaði
Hlé varð á einokun heimsmeistarans Max Verstappen í Formúlu 1 kappakstrinum í nótt því hann varð að hætta keppni snemma í Ástralíkukappakstrinum. Carlos Sainz vann keppnina.

Getur ekki keppt í formúlu 1 af því að liðið gaf öðrum bílinn hans
Logan Sargeant mun ekki taka þátt í ástralska formúlu 1 kappakstrinum um helgina eftir mjög sérstaka ákvörðun hjá liðinu hans.

Forseti FIA hreinsaður af ásökunum um hagræðingu úrslita
Forseti alþjóðaakstursíþróttasambandsins (FIA), Mohammed Ben Sulayem, hefur verið hreinsaður af ásökunum um hagræðingu úrslita í kappökstrum í Sádi-Arabíu og Las Vegas á síðasta ári.

Stal senunni en vill meira
Þrátt fyrir að hafa ekki borið sigur úr býtum í Sádi-Arabíu kappaksturinum um síðastliðna helgi er óhætt að ungstirnið Oliver Bearman hafi komið, séð og sigrað á sinni fyrstu keppnishelgi í Formúlu 1.

Krefst ellefu milljarða króna í skaðabætur
Felipe Massa, fyrrverandi ökuþór í Formúlu 1 mótaröðinni, hefur stefnt Alþjóða akstursíþróttasambandinu (FIA), Formúlu 1 og Bernie Ecclestone fyrrverandi framkvæmdastjóra mótaraðarinnar og krefst því sem nemur rúmum ellefu milljörðum íslenskra króna í skaðabætur vegna skaða sem hann, sem ökuþór Ferrari árið 2008, kveðst hafa hlotið vegna Crashgate hneykslismálsins svokallaða.

Munu ekki standa í vegi fyrir Verstappen vilji hann fara
Forráðamenn Formúlu 1 liðs Red Bull Racing segjast ekki munu neyða þrefalda heimsmeistara sinn, ökumanninn Max Verstappen, til þess að vera áfram hjá liðinu út gildandi samning milli ökumannsins og liðsins sé það hans ósk að hverfa á braut.

Heimsmeistarinn á verðlaunapalli í hundraðasta sinn
Þrefaldi heimsmeistarinn Max Verstappen vann öruggan sigur í Formúlu 1 í dag er keppt var í Sádi-Arabíu. Með sigrinum kom hann sér á verðlaunapall í hundraðasta sinn á ferlinum.

Áfall fyrir Ferrari: Sainz á leið í aðgerð - Keppir ekki um helgina
Carlos Sainz, annar ökumanna Formúlu 1 liðs Ferrari, hefur verið greindur með botnlangabólgu og þarf að gangast undir aðgerð vegna hennar. Hann mun því ekki aka bíl Ferrari þessa keppnishelgina.

Ráku konuna sem sakar Horner um óviðeigandi hegðun
Konan, sem starfaði hjá Formúlu 1 liði Red Bull Racing og sakar liðsstjórann Christian Horner um óviðeigandi hegðun, hefur verið leyst frá störfum. Þetta staðfestir talsmaður Red Bull samsteypunnar í samtali við BBC.

Forsetinn reyndi að koma í veg fyrir að keppt yrði í Vegas
Mohammed Ben Sulayem, forseti FIA - Alþjóða akstursíþróttasambandsins, er til rannsóknar vegna meintrar tilraunar til að eiga við úrslit í Formúlu 1 á dögunum. Hefur forsetinn nú verið ásakaður um að reyna koma í veg fyrir að keppt yrði í Las Vegas undir lok síðasta tímabils.

Friðarviðræður milli umboðsmanns Verstappens og Horners
Umboðsmaður Max Verstappen, heimsmeistarans í Formúlu 1, hitti Christian Horner, liðsstjóra Red Bull, á friðarfundi vegna ástandsins innan herbúða liðsins.

Forsetinn til rannsóknar fyrir meinta tilraun til að eiga við úrslit
Mohammed Ben Sulayem, forseti FIA, Alþjóða akstursíþróttasambandsins, er til rannsóknar vegna meintrar tilraunar til að eiga við úrslit kappaksturs í Formúlu 1.

Faðir Verstappens vill losna við Horner
Faðir Max Verstappen, heimsmeistara í Formúlu 1, vill losna við Christian Horner sem liðsstjóra Red Bull.

Heimsmeistarinn Verstappen byrjar á sigri
Verstappen hefur tímabilið í Formúlu 1 á sama hátt og undanfarin ár. Með frábærri frammistöðu og sigri.

Horner heldur áfram að hneyksla og gæti misst starfið
Christian Horner, liðsstjóri Red Bull í Formúlu 1 síðan 2005, gæti átt í hættu að missa starf sitt eftir að kynferðisleg smáskilaboð og myndir sem hann sendi samstarfskonu sinni láku á netið.

Stefnir í spennandi keppni í Barein: „Nánast ekkert þarna á milli“
Þrátt fyrir að Max Verstappen sé á ráspól í fyrstu keppni ársins í Formúlu 1 þá búast sérfræðingar við jafnari keppni en á sama tíma í fyrra.

Segir að Ricciardo sé bara í Formúlu út af vinsældum
Fyrrverandi heimsmeistari segir að Daniel Ricciardo sé bara í Formúlu 1 vegna vinsælda hans, ekki vegna ökuhæfileikanna.